09 nóvember 2007

Andlega fötluð ungmenni

Þó svo að kerfið sé leiðinlegt, þá ætla ég nú að henda inn þessari skemmtilegu sögu.
Eins og þið kannski vitið öll er Viskan í skóla, og þá yfirleitt með nokkrum börnum í tíma. Þessi skemmtilega saga gerðist í ensku um daginn.
Fyrir aftan hann sitja 3 stúlkur sem eru væntanlega um 17 ára. Og þær hafa bara slegið öll met, meira að segja fíflið sem var með okkur Önnu í landafræði og vissi ekki hvað gerðist í Tsjernobyl er klárari en þær! En here goes...
Þau voru sem sagt að gera verkefni, fengu orð á ensku og áttu að útskýra það t.d. "Washington? Lincoln? Kennedy? = They were presidents" og ótrúlegt en satt þá gátu þær nú svarað þessu, en áttu í erfiðleikum með flest allar hinar spurningarnar.
Það byrjaði á Skyscraper. Heyrist í einni, hvað er það? Kennarinn ústkýrir fyrir henni að það sé skýjakljúfur. Heyrist aftur, hvað er það? Dohh! Og áfram heldur stuðið. Það byrjaði á Rhine, Nile og Missisippi. Veit ekki betur en að við lærðum mjög vel um Níl í grunnskóla, en þeim er svo sem fyrirgefið að vita ekki hvað frægustu ár í heimi eru. En að vita ekki hverjir Beethoven, Shakespeare, Einstein og Van Gogh eru, það er bara heimska! Að vita ekki hver einn einasti þeirra er! En svo slógu þær öll met... þær vissu ekki hver Marilyn Monroe var!!! Veit alveg að hún er nú búin að vera dáin svoldið lengi, en hún er tískufyrirbrigði. Hélt barasta að allir vissu hver hún hafi verið.
Þannig að Víðir ákvað bara að þær væru andlega fatlaðar, og ég ætla bara að vera nokkuð sammála honum.
En ef þið hafið einhvera útskýringu á því hvernig fólk getur verið svona vitlaust, vil ég endilega heyra hana. Bjóst aldrei við að hitta heimskari manneskju en gelgjuna í landafræði, enda skemmtum við Anna okkur vel í þeim fáu tímum :) eeen, ótrúlegt en satt, það er til heimskara fólk.
Eins og strákurinn í Rúmfatalagernum sem vissi ekki hvað herðatré er...

6 ummæli:

annan sagði...

Frábært!!
Veit að Víðir skemmti sér örugglega vel yfir þessu.
En ég var búin að gleyma gellunni úr landafræði, good old times!!!

Nafnlaus sagði...

hehehe svona er æskan í dag eða mjög margir alla vega!!
bið að heilsa frá firðinum;)

Gunnsý sagði...

Vá! Eru við að tala um heimsku í hnotskurn eður ei??

Nafnlaus sagði...

heimurinn fer vestandi! Gelgjurnar hafa gert innrás og það með illt í huga.. jihh ef ég væri nú svona myndi ég skjóta mig.

Disa Skvisa sagði...

en er þá ekki spurning hvort að það sé eitthvað að menntakerfinu hjá okkur fyrst ungt fólk í dag veit ekki hverjir þessir einstaklingar eru?
Er samfélagið þá bara ekki að ala upp "heimskt" fólk?
Ég spyr bara...

Auður sagði...

það tengist menntakerfinu ekkert að vita ekki hver marilyn monroe er! þær eru bara heimskar