21 nóvember 2007

Barcelona

Ó vá hvað þetta er geggjuð borg! Mæli pottþétt með henni, ætla svo innilega að fara aftur, bara í aðeins lengri tíma... Þó svo að ferðin sjálf hafi aftur á móti byrjað ömurlega, ekki my thing að hanga upp á flugvelli að bíða í ca 12 tíma! Enda hata ég líka Iceland Express, og mér finnst það bara skylda að allir flugþjónar séu í góðu skapi. Bara fífl sem eru með einhverja stæla við fólk sem er búið að hanga upp á velli í 8 tíma seinkun. En anyways...
Þetta er bara geðsjúklega flott borg, og svo margt að skoða. Náðum að leika túrista, missa okkur í H&M, drekka kokkteila á MILK (by the way, verðið að fara þangað) sem Sirrý mælti með, náði að vera álitin pervert af öllum á ströndinni (hvað ég legg ekki á mig fyrir einhleypar vinkonur mínar). Nenni ekki að telja allt upp, ætla að skella inn nokkrum myndum með, látið ykkur það bara nægja :-)

Gaudí - Casa Miló

kirkjan...

í byggingu

í Gaudí garðinum


nýji sófinn minn

völlurinn

höfnin

stóóór bjór

white russian

áttu ekki strawberry þannig að... rasberry daquiri

malibu (sem ég þurfti að kenna þeim að gera)

ströndin

og perrinn ég...

7 ummæli:

Disa Skvisa sagði...

oh hvað þetta lítur vel út, ég verð að drífa mig til Barcelona ;)
Og ég er rosalega ánægð með perraskapinn þinn :P Mjög ánægð.

Gunnsý sagði...

Eins gott að þú nefnir ekki einhleypu vinkonur þínar! :) En ég held að Barcelona sé málið næst!

annan sagði...

Hvenær eigum við að skella okkur allar saman í svona ferð??
En gerðirðu ekkert annað en að drekka?? Farið að hafa smá áhyggjur, þarf að athuga með pláss fyrir þig hjá SSÁ.

Auður sagði...

Ég stóð mig bara ágætlega í perraskapnum
Þarf ekki að segja hverjar einhleypu vinkonurnar eru, þær gera það bara sjálfar
Áfengi smáfegngi... Sérðu ekki að ég og Gaudí erum orðnir bestu vinir?
Ég er til í svona ferð hvenær sem er, er bara búin að ákveða það að næst fer ég í lágmark 10 daga!

Disa Skvisa sagði...

ég er game - hvenær hentar ykkur? ;)
hlakka til að byrja að plana ferðina :)

annan sagði...

Mér finnst að við ættum að fara eitthvað næsta sumar þegar ég er búin í prófum. Þá myndi ég bara fljúga héðan og hitta ykkur og jafnvel fljúga svo með ykkur heim.
Hver er game??

Auður sagði...

er mjög líklega að fara út með vinnunni, og svo förum við í girl trip til þín. þannig að hver er til í að borga fyrir mig?? þá kemst ég með.
þetta fer soldið mikið eftir fjárhagnum mínum, en vá hvað ég er til í að skella mér í stelpuferð til Barcelona