28 júní 2007

Ferðalagið hafið

Jæja, þá er maður komin í sumarfrí og við farin úr bænum, og komum einmitt ekkert heim næstu rúmlega 2 vikurnar.

Lögðum af stað í gærkvöldi og fórum til Akureyris þar sem við gistum heima hjá mömmu og pabba Elfu. Fórum á 2 bílum, við Víðir og svo Birki, Elfa og Bjarni í hinum. Kíktum aðeins í RL tískuhús, Hagkaup og ríkið áður en við lögðum svo af stað í rólegheitum. Stoppuðum fyrst í Dimmuborgum þar sem við tókum ca klukkutímagöngu og skelltum okkur svo í böðin í Mývatni. Geggjað gott að slappa svona aðeins af, reyndar rándýrt en það er annað mál. Alltaf hægt að selja líffæri úr Víði.

Reyndar var aðalskemmtunin að horfa á Bjarna skemmta sér á Vopnafjarðarheiðinni. (Fyrir þá sem ekki vita, þá er það frekar mjór malarvegur þar sem að eru alltaf hrúga af rollum að sleikja veginn og vera fyrir.) En hann ákvað bara að taka þær almennilega í gegn. Birkir hægði á sér og var að bíða eftir að helvítis rollurnar drulluðu sér af veginum þegar að Bjarni opnaði bara hurðina hjá sér og gelti á þær. Bara fyndið að horfa á það í næsta bíl fyrir aftan. Hjá næstu rolluhrúgu var nú bara rúllað niður rúðunni og reynt að grýta þær með flösku. Og hann gerði þetta í hvert skipti sem að rollur voru hans megin, sama hvort þær voru á veginum eða ekki, þangað til hann var búinn með skotfæri. Átti reyndar bara 2 góð köst, þannig að ég tilkynnti honum bara að það væri á hans ábyrgð að kenna börnunum sínum að kasta betur.

En við erum allavega komin í dekur til tengdó, von á fleira fólki á morgun og það verður örugglega geggjað stuð hérna um helgina. Óvissuferð, grillveisla og margt fleira á dagskránni hjá þeim systrum þannig að þetta verður gaman. Læt nú kannski heyra í mér aftur áður en við leggjum af stað í óvissuna. Veit ekki alveg hvar ég verð í næstu viku, nema það að ég á sjóðandi heitt deit á Búðardal á föstudaginn í næstu viku.
En ég bið bara að heilsa ykkur í bili. Anna mín, passaðu bara að drepa ekki Bubba byggir og hafðu það gott í baði :)

14 júní 2007

...og blása

Oooohh, ég hef það svo gott...
snýtipappír
nefsprey
hálstöflur
meiri snýtipappír
hitastillandi
hausverkjatöflur
ennþá meiri snýtipappír
nora roberts
vídjó
tónlist
og ennþá meiri snýtipappír
tölvan mín

Vill einhver skipta við mig?? Mér finnst að það eigi að vera bannað með lögum að vera veikur á sumrin. En ætla nú ekki að gera of mikið mál úr þessu á meðan ég verð góð þegar ég fer í frí. Úúúú road trip eftir 2 vikur...
En ætla bara að halda áfram að vera veik og reyna að hunsa þessa bévítans vespu sem ákvað að kíkja í heimsókn til mín. Vona bara að hún haldi sig í eldhúsinu.

03 júní 2007

... og þær ilma, af dulúð og sól

Búið að vera brjálað að gera hjá mér undanfarið, en ætla nú ekkert að vera að skrifa um það núna. En ef þið hafið ekki tekið eftir því, þá er sumarið komið og það þýðir bara eitt. Ferðalög!!! Ohhh, sjibbý. Útilegur og stuð í allt sumar. En það er komið smá plan fyrir sumarið... Ef ég er að gleyma einhverju, eða þið hafið fleiri hugmyndi endilega koma með þær. Langar svo að endurupplifa sumarið fyrir 4 árum þegar ég var ekki eina einustu fríhelgi í bænum. Ég ætla bara að vera út um allt!

28 júní - 2 júlí: fjölskyldumót á Bakkafirði
5/6 - 11 júlí: fjölskylduganga á Hornströndum
13 - 15 júlí: ættarmót einhversstaðar á vestfjörðum
19 - 23 júlí: happy days á Þórshöfn (fyrstur kemur, fyrstur fær gistingu)

Þar fyrir utan er líka planað að fara í útilegu í Þakgil, veiðiferð/útilega við Hítarvatn, langar geggjað í helgarferð í Þórsmörk, svo er líka verslunarmannahelgin, og okkar árlega ferð á fiskidaginn nema annað betra bjóðist hehe. Þannig að núna er málið bara eitt, hverjir ætla með, hvert og hvenær erum við laus í það? Endilega leyfið mér að fylgjast með...