02 nóvember 2007

Þá koma bara fleiri börn

Hélduð þið að barnastússið væri búið? O nei nei.
Í gær eignuðust Harpa og Hannes lítinn strák. Harpa fékk hann einmitt í afmælisgjöf. Vil bara óska þeim innilega til hamingju með litla prinsinn, sem er alveg ótrúlega líkur stóra bró.

Svo er verið að opna nýja verslun í smáratorgi í dag, ótrúlega djúsí sófi á tilboði sem við Víðir erum geggjað hrifin af. Ætlum að reyna að kíkja á hann í dag.
Svo styttist alltaf í Barcelona ferðina okkar, ég er samt ekki búin að vera nógu dugleg við að læra spænskuna eða skipuleggja mig betur. You know me, ég og minn listi!

En ég á alveg rétt á að skjóta aðeins á stelpurnar, ég bara í mínu fasta sambandi og er að sjálfsögðu algjör engill!

Annars bið ég bara að heilsa ykkur í bili, ætla að þykjast vinna aðeins...


You Were Nice This Year!
You're an uber-perfect person who is on the top of Santa's list.You probably didn't even *think* any naughty thoughts this year.Unless you're a Mormon, you've probably been a little too good.Is that extra candy cane worth being a sweetheart for 365 days straight?
http://www.blogthings.com/wereyounaughtyornicethisyearquiz You Naughty or Nice This Year?

10 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Bíddu aðeins. Þú nice. Ekki möguséns!

Auður sagði...

Víst möguséns!
Ég er alltaf til fyrirmyndar :)

annan sagði...

Djöfull svindlið þið.
Þetta passar ekki, þið vitið að þið eigið að vera hreinskilnar í svona prófum.
En hvað er málið með alla strákana??? Man bara ekki eftir seinustu stelpu sem fæddist.

Auður sagði...

Það mun hafa verið 23. maí, þegar Rakel Sara Sveinsdóttir fæddist. Þetta er bara eitthvað karlaveldi, bara strákar að fæðast.
Eins og við erum nú miklu betra kynið...

Nafnlaus sagði...

Hey, þetta sýnir bara að þróunin er líka sammála um að karlmenn eru btera kynið:D

kv. Atli

annan sagði...

Right Atli.
Þú getur ekki einu sinni skrifað að þið séuð B-E-T-R-A kynið!!!

Auður sagði...

hahahaha, tekinn Atli!!!

Gunnsý sagði...

Sko sagt er að ef maður eignast strák þá þarft maður bara að hafa áhyggjur af einu tippi en ef maður eignast stelpu þá þarf maður að hafa áhyggjur af öllum tippum í bænum. Mjög gott fyrir strákforeldra ;)

Auður sagði...

ætlaði að blogga í kvöld, en síðan vildi ekki leyfa mér það. ætla bara að reyna að blogga í vinnunni á morgun :)

annan sagði...

Kom så!!!!!!!!!!!!!!!!