23 maí 2007

Walk on, walk alone!

Smá fótboltablogg... Var að horfa á úrslitaleikinn, góður leikur og mjöög góð úrslit. Ef þið vitið það ekki þá byrjaði ég einmitt að horfa á ítalska boltann þar sem mitt lið var að sjálfsögðu AC Milan. Þannig að gleði mín er mikil yfir því að hitt liðið mitt hafi unnið liði hans Jóa bró. Enda ekki furða með þennan skipper! Maðurinn verður 39 ára í næsta mánuði og er búin að spila í Seria A í 22 ár. Og fyrir ykkur stelpurnar sem fílið ekki fótbolta, þá er hann líka helvíti flottur ítalskur foli hehe.


En annars ætlaði ég að tilkynna ykkur að við erum á leiðinni í bústaðinn hans Víðis um þarnæstu helgi (fyrsta helginn í júní). Hann er staðsettur í Látravík, sem er víkin fyrir neðan Látrabjarg. Þið vitið, stóra fuglabjargið rétt hjá Patró sem allir túristarnir fara að skoða. Glæsileg hvít sandströnd og ótrúlega flottur staður! Ef þig langar með endilega láttu mig vita. Tekur ca 5 tíma að keyra, en þið ættuð nú öll að vera von að keyra ca 8 tíma á Bakkócity þannig að þetta er bara biti úr köku. Nema aumingjarnir sem taka bara flug.


Svo var ég annars að eignast litla frænku í dag. Svenni og Jónína voru að eignast fyrsta barnið sitt. Hún er algjör dúlla, með fullt fullt af ljósu hári. Og svo er hún alveg eins og pabbi sinn, ég sem sé aldrei svip á börnum sá það strax og meira að segja hann Víðir sá líka Svenna út úr þessu! Þannig að núna eru Maggi og Brynja orðin amma og afi, Maggi frændi einmitt 38 ára, Herdís og Raggi orðin afasystkini og frú Jóhanna orðin langamma 56 ára. Var einmitt að reikna það út að hún á þá núna 11 afkomendur, og 2 í viðbót á leiðinni. Meðan mamma sem er nokkrum árum eldri á okkur 3 systkinin. Við erum greinilega ekki alveg að standa okkur, enda fór mamma bara smá krókaleið og eignaðist stjúpbörn/barnabörn. Þannig að núna er komin formleg pressa á Önnu og Jóa, þið vitið að ég hef 4 ár í viðbót, þannig að pressan er ekki alveg komin á mig ennþá hehe.

4 ummæli:

annan sagði...

Nohh, pressa á mig???? Up yours!!!

Ég veit aðeins um fótbolta en ég hef ekki hugmynd um hvern þú ert að tala.

Þó að það sé mynd af honum, gæti nafnið ekki komið líka?

Auður sagði...

Halló halló! Anna, að vita ekki hver Paolo Maldini er er bara næstum því dauðasynd! Fattaði nú ekki að það vantaði nafnið, en svona hluti á fólk bara að vita.

Nafnlaus sagði...

Jæja elskan!!! Ég er nú bara sár út í þig!! Liverpool er næst besta lið í evrópu, hvar er Man. united? Ha??? Love ya

Auður sagði...

Gunga mín, Man Utd 1 dolla, Liverpool engin... svoleiðis teljum við!