Smá fótboltablogg... Var að horfa á úrslitaleikinn, góður leikur og mjöög góð úrslit. Ef þið vitið það ekki þá byrjaði ég einmitt að horfa á ítalska boltann þar sem
mitt lið var að sjálfsögðu AC Milan. Þannig að gleði mín er mikil yfir því að hitt liðið mitt hafi unnið liði hans Jóa bró. Enda ekki furða með þennan skipper! Maðurinn verður 39 ára í næsta mánuði og er búin að spila í Seria A í 22 ár. Og fyrir ykkur stelpurnar sem fílið ekki fótbolta, þá er hann líka helvíti flottur ítalskur foli hehe.

En annars ætlaði ég að tilkynna ykkur að við erum á leiðinni í bústaðinn hans Víðis um þarnæstu helgi (fyrsta helginn í júní). Hann er staðsettur í Látravík, sem er víkin fyrir neðan Látrabjarg. Þið vitið, stóra fuglabjargið rétt hjá Patró sem allir túristarnir fara að skoða. Glæsileg hvít sandströnd og ótrúlega flottur staður! Ef þig langar með endilega láttu mig vita. Tekur ca 5 tíma að keyra, en þið ættuð nú öll að vera von að keyra ca 8 tíma á Bakkócity þannig að þetta er bara biti úr köku. Nema aumingjarnir sem taka bara flug.

4 ummæli:
Nohh, pressa á mig???? Up yours!!!
Ég veit aðeins um fótbolta en ég hef ekki hugmynd um hvern þú ert að tala.
Þó að það sé mynd af honum, gæti nafnið ekki komið líka?
Halló halló! Anna, að vita ekki hver Paolo Maldini er er bara næstum því dauðasynd! Fattaði nú ekki að það vantaði nafnið, en svona hluti á fólk bara að vita.
Jæja elskan!!! Ég er nú bara sár út í þig!! Liverpool er næst besta lið í evrópu, hvar er Man. united? Ha??? Love ya
Gunga mín, Man Utd 1 dolla, Liverpool engin... svoleiðis teljum við!
Skrifa ummæli