Svefninn laðar, líður hjá mér.
Lífið sem ég ann ég lifað hef.
Fólk og furðuverur
hugann baðar andann hvílir.
Lokbrám mínum læsi uns
vakna endurnærður
Það er sumt sem maður saknar
vöku megin við.
Leggst út af á mér slokknar.
Svíf um önnur svið
í svefnrofunum finn ég
sofa lengur vil.
Þí ég veit að ef ég vakna upp
finn ég aftur til.
Svefninn langi laðar til sín
lokakafla ævi skeiðs.
Hinsta andardráttinn.
Andinn yfirgefur húsið
hefur sig til himna
við hliðið bíður drottinn.
30 maí 2007
23 maí 2007
Walk on, walk alone!
Smá fótboltablogg... Var að horfa á úrslitaleikinn, góður leikur og mjöög góð úrslit. Ef þið vitið það ekki þá byrjaði ég einmitt að horfa á ítalska boltann þar sem
mitt lið var að sjálfsögðu AC Milan. Þannig að gleði mín er mikil yfir því að hitt liðið mitt hafi unnið liði hans Jóa bró. Enda ekki furða með þennan skipper! Maðurinn verður 39 ára í næsta mánuði og er búin að spila í Seria A í 22 ár. Og fyrir ykkur stelpurnar sem fílið ekki fótbolta, þá er hann líka helvíti flottur ítalskur foli hehe.

En annars ætlaði ég að tilkynna ykkur að við erum á leiðinni í bústaðinn hans Víðis um þarnæstu helgi (fyrsta helginn í júní). Hann er staðsettur í Látravík, sem er víkin fyrir neðan Látrabjarg. Þið vitið, stóra fuglabjargið rétt hjá Patró sem allir túristarnir fara að skoða. Glæsileg hvít sandströnd og ótrúlega flottur staður! Ef þig langar með endilega láttu mig vita. Tekur ca 5 tíma að keyra, en þið ættuð nú öll að vera von að keyra ca 8 tíma á Bakkócity þannig að þetta er bara biti úr köku. Nema aumingjarnir sem taka bara flug.

19 maí 2007
Sumarið er komið! SJIBBÝ
Ég veit ekki hvort ég sé svona skrítin eða hvað, þar sem að allir aðrir virðast ósammála mér. En ég er bara hélvíti ánægð með lagið sem vann Eurovision. Hélt með Finnlandi, ótrúlega hrifin eitthvað af því lagi, en þegar hún byrjaði að syngja frá Serbíu fékk ég gæsahúð og það er minn skali á góða tónlist. Og mín ótrúlega góð og kaus þau bæði! En þetta eru nú old news.
Svo fengum við Víðir skemmtilegt bréf frá skattinum um daginn. Ég og skattmann vorum sko innilega ekki vinir þá. Okkur var tilkynnt að við gætum ekki talið fram saman þar sem að við þyrftum að lágmarki að hafa verið í sambúð í ár, og vááá það munaði alveg 10 dögum hjá okkur! En ég náði nú að redda því á föstudaginn, þannig að þetta á að vera komið í lag núna, þurfti ekki að gera skýrslurnar okkur aftur, fjúkk.
Annars hef ég hér með ákveðið að sumarið er komið. Við Víðir erum orðin sólbrún og sæt þannig að jamm, sumarið er komið. Vorum að koma heim úr bústaðnum og við erum búin að vera alveg ótrúlega dugleg, þó svo ég segi sjálf frá. Það var sem sagt verið að skipta um það á bústaðnum, verið að setja upp flottar grænar plötur. Við mættum fyrst á staðinn, eða um 2 á föstudaginn þar sem að ég dekraði við mig og gaf mér frí í vinnunni þann daginn, og Víðir var búinn á hádegi. Og getiði hvað, ÉG fór upp á þak og var þar alveg í 2 tíma! Við Víðir ótrúlega dugleg og kláruðum mæninn og smá meira áður en hitt fólkið mætti. Gagga ekkert
smá ánægð að sjá hvað við vorum dugleg. En annars kláruðum við að rífa af í gær, og vá hvað það var gott að komast í pottinn eftir það. Svo var pappanum hent á strax í morgun (ræs kl 10 mín yfir 8) og plöturnar kláraðar líka í dag. Við frænkurnar fórum líka aðeins í það að rífa niður girðinguna sem er löngu morknuð og týnd í trjánum. Þannig að þetta er geggjaður dugnaður í okkur öllum saman! Takk fyrir, takk fyrir. Þannig að við skötuhjúin ætlum bara að hafa það mjög rólegt og afslappað í kvöld.
Bið annars bara að heilsa ykkur í bili, vona samt að það verði styttra á milli næstu pósta.
Svo fengum við Víðir skemmtilegt bréf frá skattinum um daginn. Ég og skattmann vorum sko innilega ekki vinir þá. Okkur var tilkynnt að við gætum ekki talið fram saman þar sem að við þyrftum að lágmarki að hafa verið í sambúð í ár, og vááá það munaði alveg 10 dögum hjá okkur! En ég náði nú að redda því á föstudaginn, þannig að þetta á að vera komið í lag núna, þurfti ekki að gera skýrslurnar okkur aftur, fjúkk.
Annars hef ég hér með ákveðið að sumarið er komið. Við Víðir erum orðin sólbrún og sæt þannig að jamm, sumarið er komið. Vorum að koma heim úr bústaðnum og við erum búin að vera alveg ótrúlega dugleg, þó svo ég segi sjálf frá. Það var sem sagt verið að skipta um það á bústaðnum, verið að setja upp flottar grænar plötur. Við mættum fyrst á staðinn, eða um 2 á föstudaginn þar sem að ég dekraði við mig og gaf mér frí í vinnunni þann daginn, og Víðir var búinn á hádegi. Og getiði hvað, ÉG fór upp á þak og var þar alveg í 2 tíma! Við Víðir ótrúlega dugleg og kláruðum mæninn og smá meira áður en hitt fólkið mætti. Gagga ekkert

Bið annars bara að heilsa ykkur í bili, vona samt að það verði styttra á milli næstu pósta.
09 maí 2007
Rólegt í vinnunni

Ótrúlegt en satt, þá er rólegt í vinnunni núna þannig að ég ákvað aðeins að tjá mig.
Vil bara biðja ykkur sem eru með mig sem tengil á síðunum ykkar, að ef þið eruð ekki búin að breyta síðunni minni, endilega gera það sneggvast :)


En hveð ykkur í bili með fallegri mynd og að baki hennar býr enn fallegri hugsun... Þið vitið alveg að ég elska ykkur út af lífinu perrarnir mínir, en örvæntið ei. Ef þið getið verið strandaglópar í eyðimörkinni, hljóta líka að villast þangað einmana og yfirgefnir piltar!
05 maí 2007
Smá blogg
Í tilefni þess að kosningar eru um næstu helgi þá ætla ég að deila þessu með ykkur. Rakst á þetta á netinu... Eins og ég þoli nú ekki undanfara kosninga, með öllum þessum áróðri og fréttahertöku seinustu vikurnar. En samkvæmt þessu prófi á ég að kjósa frjálslynda. Það munaði nú ekki miklu á þeim eða vinstri-græna. Það kemur nú svosem ekki mikið á óvart, þó svo að ég sé ekki ennþá búin að ákveða mig.
En ég ætla nú að skemmta mér meira yfir fótbolta og eurovision heldur en kosningum þann daginn. Alltaf stuð að skemmta sér með mafíunni, og að ég tali nú ekki um upp á Skaga!
En nenni nú ekki að blogga meira núna, erum að fara spila og
sötra og hafa gaman. Bið bara að heilsa úr sólinni hérna á klakanum kl 9. Reynið bara að toppa það baunabúar. Það er ekki svona bjart hjá ykkur á þessum tíma, ekki eins gaman að fara í útilegur á sumrin ef það verður dimmt fyrir 9 á kvöldin hahaha! Og þá skiptir engu hvort það séu 27 stiga hiti og þið sólbrennið! En munið bara að þið getið notað tómat á brunann... eitthvað húsráð frá bobbIngu.
En ég ætla nú að skemmta mér meira yfir fótbolta og eurovision heldur en kosningum þann daginn. Alltaf stuð að skemmta sér með mafíunni, og að ég tali nú ekki um upp á Skaga!
En nenni nú ekki að blogga meira núna, erum að fara spila og

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)