Í tilefni þess að kosningar eru um næstu helgi þá ætla ég að deila þessu með ykkur. Rakst á þetta á netinu... Eins og ég þoli nú ekki undanfara kosninga, með öllum þessum áróðri og fréttahertöku seinustu vikurnar. En samkvæmt þessu prófi á ég að kjósa frjálslynda. Það munaði nú ekki miklu á þeim eða vinstri-græna. Það kemur nú svosem ekki mikið á óvart, þó svo að ég sé ekki ennþá búin að ákveða mig.En ég ætla nú að skemmta mér meira yfir fótbolta og eurovision heldur en kosningum þann daginn. Alltaf stuð að skemmta sér með mafíunni, og að ég tali nú ekki um upp á Skaga!
En nenni nú ekki að blogga meira núna, erum að fara spila og

sötra og hafa gaman. Bið bara að heilsa úr sólinni hérna á klakanum kl 9. Reynið bara að toppa það baunabúar. Það er ekki svona bjart hjá ykkur á þessum tíma, ekki eins gaman að fara í útilegur á sumrin ef það verður dimmt fyrir 9 á kvöldin hahaha! Og þá skiptir engu hvort það séu 27 stiga hiti og þið sólbrennið! En munið bara að þið getið notað tómat á brunann... eitthvað húsráð frá bobbIngu.
4 ummæli:
Nohh hann bróðir minn ætti að vera ánægður með mína niðurstöðu. Hún lítur svona út.
Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 25%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 10%
Stuðningur við Samfylkinguna: 0%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 12.5%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 21%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 0%
ssss, að þú skulir bara sýna þetta opinberlega! Ég fékk nú engin núll á neinn. En svo uppgötvaði ég að Eurovisoin eru líka um næstu helgi, hvað ætti maður að gera þá? Einhverjar hugmyndir? Svo er undankvöldið líka á fimmtudaginn, einhverjar hugmyndir um það líka? Endilega látið mig vita, ég er game í allt!
Svona hljómar niðurstaðan hans Víðis...
Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 31.25%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 20%
Stuðningur við Samfylkinguna: 62.5%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 31.25%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 67%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 40%
Svo tók ég prófið aftur, bara svona upp á fönnið... núna fékk ég sem sagt Vinstri-Græna. Og það er greinilegt að blóðið í mér er ekki blátt... hehe
Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 12.5%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 40%
Stuðningur við Samfylkinguna: 37.5%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 62.5%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 52%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 40%
Skrifa ummæli