En ég ætla nú að skemmta mér meira yfir fótbolta og eurovision heldur en kosningum þann daginn. Alltaf stuð að skemmta sér með mafíunni, og að ég tali nú ekki um upp á Skaga!
En nenni nú ekki að blogga meira núna, erum að fara spila og
sötra og hafa gaman. Bið bara að heilsa úr sólinni hérna á klakanum kl 9. Reynið bara að toppa það baunabúar. Það er ekki svona bjart hjá ykkur á þessum tíma, ekki eins gaman að fara í útilegur á sumrin ef það verður dimmt fyrir 9 á kvöldin hahaha! Og þá skiptir engu hvort það séu 27 stiga hiti og þið sólbrennið! En munið bara að þið getið notað tómat á brunann... eitthvað húsráð frá bobbIngu.

4 ummæli:
Nohh hann bróðir minn ætti að vera ánægður með mína niðurstöðu. Hún lítur svona út.
Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 25%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 10%
Stuðningur við Samfylkinguna: 0%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 12.5%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 21%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 0%
ssss, að þú skulir bara sýna þetta opinberlega! Ég fékk nú engin núll á neinn. En svo uppgötvaði ég að Eurovisoin eru líka um næstu helgi, hvað ætti maður að gera þá? Einhverjar hugmyndir? Svo er undankvöldið líka á fimmtudaginn, einhverjar hugmyndir um það líka? Endilega látið mig vita, ég er game í allt!
Svona hljómar niðurstaðan hans Víðis...
Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 31.25%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 20%
Stuðningur við Samfylkinguna: 62.5%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 31.25%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 67%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 40%
Svo tók ég prófið aftur, bara svona upp á fönnið... núna fékk ég sem sagt Vinstri-Græna. Og það er greinilegt að blóðið í mér er ekki blátt... hehe
Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 12.5%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 40%
Stuðningur við Samfylkinguna: 37.5%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 62.5%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 52%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 40%
Skrifa ummæli