03 júní 2007

... og þær ilma, af dulúð og sól

Búið að vera brjálað að gera hjá mér undanfarið, en ætla nú ekkert að vera að skrifa um það núna. En ef þið hafið ekki tekið eftir því, þá er sumarið komið og það þýðir bara eitt. Ferðalög!!! Ohhh, sjibbý. Útilegur og stuð í allt sumar. En það er komið smá plan fyrir sumarið... Ef ég er að gleyma einhverju, eða þið hafið fleiri hugmyndi endilega koma með þær. Langar svo að endurupplifa sumarið fyrir 4 árum þegar ég var ekki eina einustu fríhelgi í bænum. Ég ætla bara að vera út um allt!

28 júní - 2 júlí: fjölskyldumót á Bakkafirði
5/6 - 11 júlí: fjölskylduganga á Hornströndum
13 - 15 júlí: ættarmót einhversstaðar á vestfjörðum
19 - 23 júlí: happy days á Þórshöfn (fyrstur kemur, fyrstur fær gistingu)

Þar fyrir utan er líka planað að fara í útilegu í Þakgil, veiðiferð/útilega við Hítarvatn, langar geggjað í helgarferð í Þórsmörk, svo er líka verslunarmannahelgin, og okkar árlega ferð á fiskidaginn nema annað betra bjóðist hehe. Þannig að núna er málið bara eitt, hverjir ætla með, hvert og hvenær erum við laus í það? Endilega leyfið mér að fylgjast með...

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

HVERNIG ER ÞAÐ ERU ALLAR ÚLEIGURNAR MEÐ VÍÐIS FJÖLSKILDU?? PFFF HVAÐ ER MEÐ OKKAR EKKERT AÐ GERAST????

EN HVERNIG VAR Á LÁTRABJARGI???

Auður sagði...

Við fórum ekkert vestur. Var bara allt of mikið að gera. Bara verst að ég missti af alvöru sjómannadegi.
En eins og ég sagði, þá má alveg bæta við þetta og allir þeir sem vilja vera memm mega það. Þá skiptir engu máli hvaða fjölskyldu fólk er í, þetta er hvort sem er allt sama pakkið :)

Nafnlaus sagði...

Hæhæ!

Ég ætlaði nú bara að láta í mér heyra frá Danaveldi! Ég sé að það er nóg að gera hjá þér í sumar en einmitt er það vonandi að breytast hjá mér því að ég er LOKSINS nærrum kominn með vinnu!! Ég er að fara í prufu klukkan 10 í fyrramálið á fínu kaffihúsi hérna niðrí bæ. Þau eru mjög laus á tungumálum svo að ég get talað mikla ensku! Fyndna er að þau hafa verið að leita af barþjóni sem getur hrist kokteila því að þau nota eiginlega bara blendera (semsagt ég er að fara að læra að gera killer strawberry daiquiry!)

En allavega gaman að það sé nóg að gera hjá ykkur!

kv. bauni