19 maí 2007

Sumarið er komið! SJIBBÝ

Ég veit ekki hvort ég sé svona skrítin eða hvað, þar sem að allir aðrir virðast ósammála mér. En ég er bara hélvíti ánægð með lagið sem vann Eurovision. Hélt með Finnlandi, ótrúlega hrifin eitthvað af því lagi, en þegar hún byrjaði að syngja frá Serbíu fékk ég gæsahúð og það er minn skali á góða tónlist. Og mín ótrúlega góð og kaus þau bæði! En þetta eru nú old news.

Svo fengum við Víðir skemmtilegt bréf frá skattinum um daginn. Ég og skattmann vorum sko innilega ekki vinir þá. Okkur var tilkynnt að við gætum ekki talið fram saman þar sem að við þyrftum að lágmarki að hafa verið í sambúð í ár, og vááá það munaði alveg 10 dögum hjá okkur! En ég náði nú að redda því á föstudaginn, þannig að þetta á að vera komið í lag núna, þurfti ekki að gera skýrslurnar okkur aftur, fjúkk.

Annars hef ég hér með ákveðið að sumarið er komið. Við Víðir erum orðin sólbrún og sæt þannig að jamm, sumarið er komið. Vorum að koma heim úr bústaðnum og við erum búin að vera alveg ótrúlega dugleg, þó svo ég segi sjálf frá. Það var sem sagt verið að skipta um það á bústaðnum, verið að setja upp flottar grænar plötur. Við mættum fyrst á staðinn, eða um 2 á föstudaginn þar sem að ég dekraði við mig og gaf mér frí í vinnunni þann daginn, og Víðir var búinn á hádegi. Og getiði hvað, ÉG fór upp á þak og var þar alveg í 2 tíma! Við Víðir ótrúlega dugleg og kláruðum mæninn og smá meira áður en hitt fólkið mætti. Gagga ekkert smá ánægð að sjá hvað við vorum dugleg. En annars kláruðum við að rífa af í gær, og vá hvað það var gott að komast í pottinn eftir það. Svo var pappanum hent á strax í morgun (ræs kl 10 mín yfir 8) og plöturnar kláraðar líka í dag. Við frænkurnar fórum líka aðeins í það að rífa niður girðinguna sem er löngu morknuð og týnd í trjánum. Þannig að þetta er geggjaður dugnaður í okkur öllum saman! Takk fyrir, takk fyrir. Þannig að við skötuhjúin ætlum bara að hafa það mjög rólegt og afslappað í kvöld.

Bið annars bara að heilsa ykkur í bili, vona samt að það verði styttra á milli næstu pósta.

3 ummæli:

annan sagði...

Nohh bara dugnaður í gangi!!
Var engin myndavél með í för? Þar náttúrulega að fá myndir af amish, þar sem er aðeins og langt að fara fyrir mig. Get huggað mig við það að ég næ amish stemningu hjá Ásdísi í sumar.
Bið annars bara að heilsa.

Auður sagði...

Jújú, að sjálfsögðu. Mín mætti með myndavélina og á þetta allt saman á filmu (þú veist, eða næstum því) ætla einmitt annað hvort að skella þeim inn á disk, eða framkalla þær. Svona svo að fólk geti séð þetta!

annan sagði...

Styð það. Það er alveg komin tími til að bæta eitthvað í þetta albúm upp í bústað. Alltaf jafn gaman að skoða það. Lætur mömmu kannski bara blæða í framköllun ;)

28 dagar í heimkomu eða akkurat 4 vikur. Bara svona svo fólk gleymi því ekki.