Svo vil ég líka óska gamla fólkinu til hamingju með daginn. En þetta er stór dagur í lífi mömmu og Sæma, því turtildúfurnar eiga 2 ára brúðkaupsafmæli í dag. Þurfti reyndar að minna Sæma kallinn á það, en hún fær kannski rósir í kvöld eða eitthvað.
Annars er ég ekki ennþá að komast yfir það hvað allir eru óléttir. Ég er einmitt ekkert að grínast með það. Fórum og skoðuðum litlu prinsessuna í dag, algjör snúlla. Og er búin að frétta af fleiri óléttum, þannig að þetta liggur við faraldshættu. Það má víst ekki anda á sumar, þær verða bara óléttar hehe. Kallinn sagði þetta sjálfur þannig að ég er ekkert að ýkja hlutina.
Svo var ég annars að fá slæmar fréttir í gær. Einn sem er að vinna með mér á ólétta konu (surprise, surprise) og hún er ólétt af

En mín bara aðeins að pústa. Hafið það nú bara gott elskurnar mínar. Sé ég ykkur ekki öll í eldheita parýinu á Pravda í kvöld? Fékk allavega formlegt boð...
1 ummæli:
Ég hef ákveðið að það sé verið að ljúga að þér. Tvíburar koma frá pabbanum, það höfum við alltaf sagt og breytum því ekki núna.
Ég náði meira að segja Pravda brandaranum!! Gott fyrir útlendinginn.
Skrifa ummæli