En þá eru bara eftir 5 óléttur í nánustu fjölskyldu. (Sem ég veit um, by the way!) Og nei, við erum ekki að koma með eitt eða að drífa okkur í þessu eða hvernig sem þið viljið orða þetta. Búin að fá þá spurningu of oft! Og enginn hringir í Víði eða boggar hann á þessu! Arg, drasl er þetta, það er ekki á planinu næstu árin. Ég læt ykkur vita þegar það breytist.
Annars er bara allt það fínasta að frétta, ég náði að henda 3 myndum í viðbót upp, næst eru það bara ljósin. Þau þurftu jú alveg ár til að aðlagast breyttu heimili áður en þau eru bara fest þar. Það segir rafvirkinn allavega. Svo er Annan mín aftur farin heim til sín, vel úthvíld og endurnærð hehe! Gott að sofa í flugvélinni og lestinni...
Svo er bústaður um helgina, við orðin svo fullorðin að það gætu jafnvel laumast með 1 stk barn eða jafnvel fleiri. En það er verið að halda upp á afmælið hjá kallinum, ellismellurinn verður 26

En bið annars bara að heilsa ykkur í bili. Ætla að fara að gera eitthvað af viti.
5 ummæli:
Komin með aðeins betri upplýsingar. Hún var 12 merkur og 47 cm.
TIL HAMINGJU MEÐ KALLINN;O)
HAFIÐ ÞAÐ GOTT UM HELGINA OG EKKI GERA ÞAÐ SEM ÉG MYNDI EKKI GERA Í POTTINUM;O)
Til hamingju með kallinn, en ertu ekki aðeins of sein í þessu Herdís mín?
of sein í hverju anna mín????
Þau voru uppi í bústað seinustu helgi.
Skrifa ummæli