Það er bara allt að gerast. En fjölgun mannkynsins er hafin. One down, few to come! Bjarni og Þórdís eignuðust litla prinsessu í gær, veit ekki meir þar sem engar nánari upplýsingar voru gefnar út. En henni var fagnað um allan heim í gær, aðallega af rauðklæddu fólki að horfa á fótbolta, þar sem hún fæddist á svo góðum tíma eða kl hálf níu í gærkvöldi.En þá eru bara eftir 5 óléttur í nánustu fjölskyldu. (Sem ég veit um, by the way!) Og nei, við erum ekki að koma með eitt eða að drífa okkur í þessu eða hvernig sem þið viljið orða þetta. Búin að fá þá spurningu of oft! Og enginn hringir í Víði eða boggar hann á þessu! Arg, drasl er þetta, það er ekki á planinu næstu árin. Ég læt ykkur vita þegar það breytist.
Annars er bara allt það fínasta að frétta, ég náði að henda 3 myndum í viðbót upp, næst eru það bara ljósin. Þau þurftu jú alveg ár til að aðlagast breyttu heimili áður en þau eru bara fest þar. Það segir rafvirkinn allavega. Svo er Annan mín aftur farin heim til sín, vel úthvíld og endurnærð hehe! Gott að sofa í flugvélinni og lestinni...
Svo er bústaður um helgina, við orðin svo fullorðin að það gætu jafnvel laumast með 1 stk barn eða jafnvel fleiri. En það er verið að halda upp á afmælið hjá kallinum, ellismellurinn verður 26

ára. Og hugsiði ykkur bara, hann er ekki ennþá kominn með grá hár! En það verður ljúft að slappa af í pottinum, grilla og hafa það bara gott.
En bið annars bara að heilsa ykkur í bili. Ætla að fara að gera eitthvað af viti.