27 mars 2007

Gerið ykkur klár...

Það er búið að slátra alikálfinum, mála íbúðina, kaupa ný húsgögn og skipta kallinum út því endurkoma týndu dótturinnar er loksins framundan!
Nei nei, kannski ekki alveg svona slæmt, kallinn losnar ekkert við mig :D En það er búið að laga gardínurnar, kaupa myndir sem MUNU verða komnar upp áður en hún kemur og að sjálfsögðu þrifið hátt og lágt. Framundan er reyndar alveg stíft plan, það er:
Föstudagur: spilakvöld heima hjá mér, við stelpurnar tökum bara rólega gúrku á þetta (í þeirri merkingu sem þið vilji)
Laugardagur: spilakvöld heima hjá mér, frændsysktinin í stuði (engin rólegheit)
Sunnudagur: matarboð, tengdó, og þau í Hnotuberginu (djísús kræst) en Annan mín ætlar einmitt að koma og hjálpa mér að þrífa og elda
Miðvikudagur?: frænkukvöld heima hjá mér, við og kallarnir okkar


Svo ætlaði ég líka að kíkja upp í bústað eina nótt. Það verður alveg nóg að gera hjá minni meðan systa er á "klakkanum" enda langt síðan maður sá hana.

Ef þið viljið hitta mig, leggið bara inn pöntun hérna í commentonum.

En ég og plönturnar mínar biðja bara að heilsa, endilega látið heyra í ykkur. Ykkur er líka velkomið að detta í heimsókn til mín, á nóg af bjór og meðlæti. Maður dekrar við danann alveg...

4 ummæli:

annan sagði...

Nohh... það er aldeilis.

Það er eins gott að það verði allt spik og span, ég ætla að þurfa fara úr skónum. If you know what I mean!!!

En bjór er það eitthvað ofan á brauð?? Kannast ekki við það héðan úr danaveldi.

Auður sagði...

Je rææææt! Baunabykkjur þarna í þessu smáríki. Þú verður komin með fráhvarf á sunnudaginn og samt verðuru vel ölvuð á laugardaginn allavega... Sem minnir mig á að ég ætlaði bara að ýta á eftir sms-inu mínu með því að dingla hjá fólki, ryðjast inno og heimta svar. Og þetta verður svona svar eins og mamma vill fá, þegar það eru 2 valmöguleika, annar tekinn út þá stendur bara eftir einn þannig að allir þurfa að segja já. (skildi þetta einhver annar en Annan?) Anywhoes, sé þig á föstudaginn :D

Disa Skvisa sagði...

Takk fyrir síðast.. gaman að fá svona greetings þegar maður kemur til landsins :D

Gleðilega páska og reynum svo að vera duglegar að hittast eftir páska.. Bara bóka langt fram í tímann svo við vitum báðar að við komumst;)

Hafðu það gott esskan :D

Nafnlaus sagði...

hæ skvísa .. ég er búin að vera á leiðinni að hringja í þig í viku eða 1hvað .. allavega síðan þú hringdir í mig þarna 1hvert laugardagskvöldið, var skrall í gangi.... mín var bara með leiðindi, löngu sofnuð :oS