10 mars 2008

Update

Jæja, þá er komið að smá update-i.
Bíllinn minn er bara með 2 drullusokka núna.
Við erum búin að mála baðið, fórum aukaumferð viku seinna þar sem að málningin lak. Komst að því í gær að málningin lak aftur, þannig að við þurfum að mála yet again! Þannig að núna á að kíkja hvort að málningin sé svona léleg fyrir baðherbergið.
Fyrir


Loftið orðið nokkuð ljótt

Þvílíkur munur þegar við vorum búin að pússa veggina

Það gekk svoldið mikið á hjá Víði

Eftir

Nema hvað að núna vantar okkur smá lit þarna inn

Skelltum okkur í IKEA um helgina og keyptum okkur hillur og viti menn, þær eru bara komnar upp.


Ég keypti mér annars nýja bók um daginn. Eftir snillinginn hana Noru Roberts. Komst að því þegar ég var samasem búin með bókina að þetta var bara sú fyrsta í nýju trilogy hjá henni. Ákvað að kíkja á Amazon hvort ég gæti ekki bara keypt hinar tvær í staðinn fyrir að bíða eftir því að þæra koma til landsins. En neinei, bók númer 2 kemur út í maí og þriðja bókin kemur ekki fyrr en í DESEMBER!!! Þetta eyðilagði daginn alveg hjá mér. Get ekki beðið í níu mánuði! Alveg á bömmer.
Er að fara til útlanda eftir 4 daga, jibbý get ekki beðið.
Ætti að vera nóg af update-i núna.
Annars er komið vor hjá mér

7 ummæli:

annan sagði...

Nohh dugnaður í minni.
Ætti maður samt ekki að byrja á því að athuga hvort málingin henti á þann hlut sem maður er að fara mála?? Mér er spurn...
Hver var annars að gefa þér blóm?
Ég fékk svona fjólublá...

Nafnlaus sagði...

Ef þú getur ekki beðið í níu mánuði þá veistu alveg hvað ég ætla að segja hahahah
Gunga

Auður sagði...

fékk málninguna gefins og hún móðir mín var alveg sannfærð um að þetta myndi passa þarna inn.
þú varst víst búin að frétta hver gaf mér blóm. það voru nú ekki margir í þeim bransanum sko...
gunga mín. þú getur nú ekki einu sinni beðið þangað til í kvöld þannig að hvað ert þú að skjóta!!

Nafnlaus sagði...

Heheehe. Mér skilst að það sé mjög langur tími sem mar þarf að bíða eftri sófa í Danmörku. Bara fara að panta sér núna átti ég við :P
Gunga

Unknown sagði...

Svakalega flott málun! Góða ferð út :) Kv.Soffía

Nafnlaus sagði...

Nohh bara dugnaður í minni!

góða ferð út!

kv. Atli

Gunnsý sagði...

Hvað er langt síðan þú málaðir síðast??