Annars er planið hjá okkur Víði að vera ótrúlega dugleg um helgina. Ætlum að mála baðherbergið hjá okkur, þurfum að pússa það allt fyrst. En erum komin með juðara og
málningu og ætlum að vera helvíti dugleg. Enda alveg kominn tími á smá upplyftingu þar. Þá fækkar gulu herbergjunum okkar um eitt, nokkuð gott afrek hjá okkur. Þannig að ef þið fréttið af því að við erum ekki að standa okkur, endilega rekið á eftir okkur.Júbb, svo er ég loksins búin að ákveða mig með hillur inni í stofu. Ég ætla að kveðja Magga og þakka honum fyrir samfylgdina, búin að búa hjá okkur síðan við keyptum íbúðina. Við kíktum í IKEA og ætlum að kaupa okkur svoleiðis vegghillur. Erum bara aðeins að pæla í hvaða lit við eigum að fá okkur, og okkur líst best á þennan (þetta er ekki alveg svart, er með viðarrákum í). En þetta er allt að gerast. Einhver svaka framkvæmdagleði yfir mér þessa dagana.
Hva meir... júbb er að fara til útlanda eftir 3 vikur. En þessir fáu sem lesa þetta vita það líklega, og eru jafnvel að fara með mér.
Held ég segi þetta gott í bili, svo er bannað að setja út á hvað ég bloggi lítið, ef það commentar enginn hjá mér! En þetta ætti nú eitthvað að gleðja systur mína, untill next time...

6 ummæli:
Gangi ykkur vel að mála.
Hvernig gengur svo að mála??
Helduru að við séum ekki bara búin að mála!! :) Þvílíkur dugnaður í okkur og þetta kemur bara helvíti vel út hjá okkur líka.
Er það bara ég sem þarf að setja inn myndir?
Nei nei, var á fullu með myndavélina. Þetta er allt saman í vinnslu...
Ég hlakka til að sjá myndir :D
Skrifa ummæli