Já gott fólk, það fór bara beint í ruslið.
Rúmlega 11 mánaða sambandi lokið. Eftir að hafa boðið nokkrum að taka við jukkunni minni ákvað ég bara að henda henni í ruslið. Fékk hana í byrjun ársins, þannig að ég held að ég hafi farið fram úr björtustu vonum.
Annars er ég búin að ákveða að ég skil lækna bara ekki neitt. Þegar ég loksins fór heim af spítalanum var bæði læknirinn minn og hjúkkan búin að segja mér að ég ætti að koma í tékk aftur eftir 2 vikur og svo ómskoðun eftir áramót. Röntgenlæknirinn vill eitthvað skoða lifrina í mér betur. Vona bara að það komi allt gott út úr því, en allavega. Fékk símtal frá röntgendeildinni í gær og þá átti ég víst tímahjá þeim í ómskoðun í gærmorgun, sem ég mætti ekki í, what!! Enginn búinn að segja mér frá því, þannig að þær ákváðu bara að fresta tímanum um einn dag, og minntu mig svo á hvenær segulómunin mín er. Uhhh, vissi ekki einu sinni að ég ætti að fara í svoleiðis skoðun. Ég í mínu sakleysi spyr bara hvort að ég geti farið í ómskoðun svona stuttu eftir aðgerð, þegar ég væri ennþá aum og svona, sérstaklega þegar mér var tilkynnt að ég ætti bara að fara í þetta eftir áramót. Það stóð víst á einhverri beiðni að ég hefði beðið um að klára þetta í desember út af afsláttarkortinu. Sem ég á ekki einu sinni. Þannig að ég bara spurði hvort að ég mætti ekki bara fara í báðar rannsóknirnar eftir áramót, og þær redduðu því bara fyrir mig. Þannig að ég verð væntanlega komin með afsláttarkort strax í fyrstu vikunni á næsta ári, damn, og ég sem gerði svo mikið grín að Víði í fyrra af því hann var svo snöggur að fá sitt kort.
En annars er ég öll að koma til. Ekki jafn aum og ég var fyrst. Er farin að geta staðið upp sjálf, sjibbý! En mjög gott að eiga svona góðar byrgðir af læknadópi :) Bara verst hvað mig klæjar svakalega undir plástrunum mínum, ohh langar svo að klóra mér almennilega.
Annars vil ég bara óska Katrínu Sól og Möllu til hamingju með daginn, og munið svo að vera stillt og góð börnin góð svo þið fáið nú ekki kartöflu í skóinn...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
R.I.P jukka.
Hey fékk hún aldrei neitt nafn??
Þú veist hvernig þetta í okkar fjölskyldu.
Þetta er bara sama tímalengd og í denn þegar þú hættir að reykja. Nokkuð skondið.
nei, var hætt að reykja aðeins lengur. munar ekki nema viku eða tveimur. en ég greinilega klikkaði alveg á því að skíra hana. ótrúlegt en satt. man það bara næst hehe...
Æi aumingja jukkan! Megi hún hvíla í friði.Ekki það að ég man mikið eftir henni en hún gerði mikið fyrir íbúðina ;)
ég veit, hún lífgaði mikið upp á andrúmsloftið...
Jæja, mér leiðist að lesa um dauðu jukkuna. Koma með eitthvað lifandi ;)
Jæja! Hvernig er það. Á ekkert að skrifa neitt á þetta blogg?
Skrifa ummæli