06 september 2007

Bleh

Hefur nú ekki mikið gerst hjá mér undanfarið. Er samasem flutt í vinnuna... alltaf að vinna langt fram eftir kvöldi þannig að ég hef ekki tíma eða orku í að gera neitt.
Þvílíkur dugnaður í mér, mín bauð bara í mat í kvöld. Sérréttur a la Auður. Tortilla... Birkir og Elfa komu með Kristófer Óla og Árni Leó. Frekar lítið af öllu meðlætinu eeeen heppnaðist bara nokkuð vel. Svo fann Óli tölvuleikina mína og hann skemmti sér stórvel, og ég bara uppgötvaði hvað ég á marga skemmtilega tölvuleiki. Anna þú skrifar það hjá þér og við rifjum þetta upp þegar þú kemur næst.
Annars er hann faðir minn algjör snillingur. Hann fór í einhverja ferð að Búrfelli með gömlu skólafélögunum úr MR. Datt ofaní einhverja gjótu um hádegi á laugardag. Það voru 2 læknar á staðnum og þeir hlúðu að honum og héldu að hann væri brotinn. Hann labbaði til baka, erfiða leið upp og niður en hann var svo dofinn að hann fann ekkert til. Svo var hann farinn að finna meira til á sunnudaginn þannig að hann ákvað að drífa sig nú á slysó. Hann þurfti nú bara að keyra úr Garðabænum! Komst að á endanum, týndist í klukkutíma og eftir röntgen kemur í ljós að önnur pípan í löppinni er brotin. En það truflaði hann nú lítið í 1 og hálfan dag! Ruglaður. En hann þarf að vera í gifsi í 7-10 daga og svo fær hann göngugifs í 5 vikur. Þannig að við systkinin erum búin að reyna að dekra hann aðeins.
Svo er allt að gerast í barnamálum. Erna og Gulli eru á fullu væntanlega as we speak! Víðir eignaðist frænda í dag, Þorvaldur og Alrún eignuðust strák í dag, gleymdi þeim víst í upptalningu. En þau eiga heima í Köldukinninni. Svo var Dóri félagi hans Víðis líka að eignast stelpu í dag. Og við misstum af allri óléttunni og allt! Ekki alveg að standa okkur, enda allt of margir óléttir til að keep up.
En ætlaði nú bara að létta aðeins á mér. Svo er Danmerkurferðin mín aðeins í uppnámi, en á eftir að tala betur við systur mína og sjá hvað verður.

Later píps!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

voooohóó ekker smá margir að eignast börn núna og næstunni =O

en ég er ekkert á leiðinni allavega ekki næstu 9mánuði ;p

Auður sagði...

nákvæmlega!
loksins einhver sem er á sömu blaðsíðu og ég.
en í augnablikinu er von á 5 nýjum krílum, (bara það nánasta) og það síðasta er sett 3. nóv minnir mig