Jæja, þá er maður komin í sumarfrí og við farin úr bænum, og komum einmitt ekkert heim næstu rúmlega 2 vikurnar.
Lögðum af stað í gærkvöldi og fórum til Akureyris þar sem við gistum heima hjá mömmu og pabba Elfu. Fórum á 2 bílum, við Víðir og svo Birki, Elfa og Bjarni í hinum. Kíktum aðeins í RL tískuhús, Hagkaup og ríkið áður en við lögðum svo af stað í rólegheitum. Stoppuðum fyrst í Dimmuborgum þar sem við tókum ca klukkutímagöngu og skelltum okkur svo í böðin í Mývatni. Geggjað gott að slappa svona aðeins af, reyndar rándýrt en það er annað mál. Alltaf hægt að selja líffæri úr Víði.
Reyndar var aðalskemmtunin að horfa á Bjarna skemmta sér á Vopnafjarðarheiðinni. (Fyrir þá sem ekki vita, þá er það frekar mjór malarvegur þar sem að eru alltaf hrúga af rollum að sleikja veginn og vera fyrir.) En hann ákvað bara að taka þær almennilega í gegn. Birkir hægði á sér og var að bíða eftir að helvítis rollurnar drulluðu sér af veginum þegar að Bjarni opnaði bara hurðina hjá sér og gelti á þær. Bara fyndið að horfa á það í næsta bíl fyrir aftan. Hjá næstu rolluhrúgu var nú bara rúllað niður rúðunni og reynt að grýta þær með flösku. Og hann gerði þetta í hvert skipti sem að rollur voru hans megin, sama hvort þær voru á veginum eða ekki, þangað til hann var búinn með skotfæri. Átti reyndar bara 2 góð köst, þannig að ég tilkynnti honum bara að það væri á hans ábyrgð að kenna börnunum sínum að kasta betur.
En við erum allavega komin í dekur til tengdó, von á fleira fólki á morgun og það verður örugglega geggjað stuð hérna um helgina. Óvissuferð, grillveisla og margt fleira á dagskránni hjá þeim systrum þannig að þetta verður gaman. Læt nú kannski heyra í mér aftur áður en við leggjum af stað í óvissuna. Veit ekki alveg hvar ég verð í næstu viku, nema það að ég á sjóðandi heitt deit á Búðardal á föstudaginn í næstu viku.
En ég bið bara að heilsa ykkur í bili. Anna mín, passaðu bara að drepa ekki Bubba byggir og hafðu það gott í baði :)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
Bið að heilsa liðinu og panta hér með litla herbergið í Hraungerði!!
Ef að Bubbi deyr er það ekki mér að kenna, hann drepst væntanlega úr leiðindum, litla greyið. Nei segi bara svona, við erum orðnir ágætis vinir.
Ef þú reynir að hringja í mig um helgina og ég svara ekki, þá verð ég væntanlega bara í baði. Ætla ekki upp úr því nema til að sjá um Bubba að sjálfsögðu.
Hilsen.
Þú gætir jafnvel bara tekið Bubba með þér í bað. Þau eiga víst í einhverjum vandræðum með að kenna honum á sturtuna.
Bara svona hugmynd.
Hilsen
ókei....
Hver er bubbi byggir???
og hvað er djókið með baðið??
kv. Einmanna Baunafarinn
hehe... þið systur eru sko sérstakar...:) en svo það se á hreinu þá var bubbi á lífi þegar við komum heim :) en þa er það bara hjá okkur birki að reyna að halda plöntunni a lifi:)
Jæja skvís.
ég hlakka til að fá að lesa ferðasöguna frá þér:D
All the best
Ætlaði að vera ógeðslega dugleg og skrifa ferðasöguna í kvöld en fékk gesti og nenni því ekki núna. Eftir aaaallt of langan vinnudag er mín bara orðin smá sybbin og verð kannski dugleg á morgun og tjái mig þá. Betra að klára eina ferð áður en ég legg af stað í næstu.
Skrifa ummæli