06 mars 2007

Rólegheitin

Hef nákvæmlega ekkert að segja, en ákvað nú aðeins að láta vita af mér. Er ennþá að jafna mig á þessari andskotans flensu, alveg komin með nóg.
Var búin að ákveða að vera heima alla helgina með táslurnar upp í loftið og reyna að jafna mig. Endaði nú með því að ég fór út báða dagana, bara fyrir fótbolta. Við Atli fórum semsagt á fyrsta fótboltaleikinn okkar á þessu ári. Sátum í troðfullri stúku og í hrikalegri stemmningu í Egilshöllinni. Öll 30 sætin upptekin, og enginn tilgangur að klappa eða hvetja sitt lið áfram. Verðum bara að gera þetta sjálf.
Svo er alveg nóg að gera í vinnunni, veikindi allsstaðar þannig að ég er bara ein á morgnanna. Smá pressure en ég er soddan snillingur að ég höndla þetta alveg.
Svo kíkti Ásrún tölvugúru og ég henti inn einni ritgerð fyrir hana. Þau eru víst svo klár á tölvur. Hún bað Frank um að skella henni inn, en hann kann ekkert á þetta world forrit þannig að hún ákvað bara að hringja í yours truly! En hún náði allavega að skila ritgerðinni í dag, þannig að þetta fór allt saman vel.

Er að spá í að halda bara áfram að lesa og hafa það rólegt meðan strákarnir leika sér í tölvunni. Heyri bara í ykkur seinna... plönturnar mínar biðja líka að heilsa. Out!

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ELSKU AUÐUR.... HAFÐU ÞAÐ ROSA GOTT Í DAG;O) LÁTTU NÚ KALLINN STJANA EXTRA MIKIÐ VIÐ ÞIG!!!!!
KNÚS OG KOSSAR FRÁ OKKUR ÚR GRÆNUKINNINNI;O)

annan sagði...

Det er Auður fødelsdag i dag,
hurra hurra hurra!!!

annan sagði...

En ég skil ekki afhverju það tók því ekki að styðja liðið, smá útskýring!!

Nafnlaus sagði...

Þetta var nú bara kaldhæðni, stemmingin var svoleiðis að það var bara eins og þeir þyrftu engann stuðning. Fólk kom bara til að spjalla eða eitthvað.