Jæja, var komin með leið á hinni síðunni minni. Ætla að sjá hvernig þessi kemur inn. Langar nebbla að vera flinkari við að henda inn myndum og svona, veit að það eru nú einhverjir sem gætu hjálpað mér með það.
Annars er nú voða lítið að heyra frá mér. Mjög langt síðan ég lét heyra í mér en nenni nú ekki að tala um það allt.
Það var óvissuferð í vinnunni um seinust helgi. Skipt í lið og haft þrautir og leiki og svona. Það var alveg geggjað stuð. Pool- og pílukeppni á Classic, svo var hoppað í rútu og við enduðum upp á Skaga. Þar fórum við í íþróttahúsið og lékum okkur smá og borðuðum. Endaði að sjálfsögðu á því að mitt lið vann, þannig að ég er óvissuferðarmeistari. Takk takk! Ég kynntist vinum hans Jóa aðeins betur, þeir eru 2 sem að vinna með mér. Það endaði nú á því að Bogi var farinn að mata mig á jarðarberjum, og þá náttla mataði ég hann á móti. Þetta var svona bonding ferð. Ég ákvað að fara bara heim þegar rútan kom í bæinn rétt eftir miðnætti. Stuttu seinna fékk ég sms frá Jóa. Þá höfðu strákarnir víst tilkynnt honum að Runólfsdóttir hefði drepist og verið skilin eftir. Ég leiðrétti þann misskilning bara. Svo er bara búið að vera rugl að gera í vinnunni þessa viku. Er búin snemma ef ég kemst út fyrir 7, var lengst til 9. Þannig að mín er drulluþreytt eftir það.
Hætti líka að reykja fyrir viku síðan. Búin að standa mig bara nokkuð vel í því. En ekkert samt vera að spurja Birki út í það. Bjarni hefur bara slæm áhrif á mig, það er allt og sumt.
En ætla að slútta þessu í bili. Ætla aðeins að prufa hvað þessi síða getur sniðugt. Heyri bara í ykkur. Plönturnar mínar biðja að heilsa.

4 ummæli:
Nohh bara dugnaður í minni!! Vá hvað ég kannast við Runólfsdóttir, það er eins og vinir hans Jóa geri sér ekki grein fyrir því að við höfum fyrra nafn. En til hamingju með titilinn!! Klapp klapp.
Bosvo var ég líka búin að henda myndum af blótinu inn og ætlaði að skella nokkrum leiklistarmyndböndum inn í leiðinni frá því um jólin, en það er ekki hægt að skoða myndböndin. geturu nokkuð hjálpað mér eitthvað með það?
Bjalla í þig í kvöld og ræði þetta.
Heyrru til hamingju með þessa síðu!
bara að kvitta og segja hæ!
kv. Atli
Skrifa ummæli