Þoli ekki að vera veik!! Búin að vera veik síðan á föstudag og þetta kemur alveg á versta tíma. Er enn einu sinni komin með lyfjabúr heim til mín, við Víðir hljótum nú að halda allavega einu ef ekki tveimur lyfjafyrirtækjum fljótandi. Ég held samt að það sé önnur ástæða af hverju hálsinn á mér er svona slæmur. Bifhárin mín eru nefnilega að lifna við. Það gerist víst þegar maður hættir að reykja, og það eru jú að verða komin 6 ár síðan þau drápust aftur. (Ég er samt bara 18 sko) Var einmitt að rifja upp Akureyrarferðina um daginn, sem ég jú byrjaði að reykja aftur fyrir. Helvíti var það skemmtileg helgi. Ásdís sá bæði rauðmaga og hval... soddan vitleysingur hehe.

Hafið þið ekki alveg séð hval í Eyjafirðinum? Bara á pollinum? Syndandi í rólegheitum með rauðmaganum.
Er að spá í að segja þetta bara gott í bili. Það er jú nóg að Anna viti hvernig heilsan hjá mér er, þar sem þú ert jú sú eina sem lest þetta bull mitt. En ég og plönturnar mínar biðja bara að heilsa í bili. Ekki verða lasin!
4 ummæli:
heyy ég er líka að lesa..
er að reyna vera dúleg að kíkja á þig!
flott nýja síðan ;p
þessi fokking flensa er að verða brjál.. á þessu, ekki að fíla þetta!! búin að vera meira og minna veik í 2vikur =´(
kv.Hrafnhildur K
ég er líka að lesa:O) Og sendi bötnunarstrauma .......
kv.Drífa
BÖTNUNARSTRAUMAR!!!
kv. Peek a pooh
hahah bifhár. what hvað er það nú eiginlega??hehe
en láttu þér batna sæta min.
bið að heilsa
jona
Skrifa ummæli