31 október 2007

Snjórinn fór bara aftur

Where to start...
Við Gunga fundum börnin í okkur og fórum út að leika á mánudagskvöldið. Hún á þennan fína sleða sem við kipptum með okkur upp í Heiðmörk. Renndum okkur og sáum stjörnuhröp og enduðum svo á að fá okkur heitt kakó. Það var bara geggjað hjá litla draugahúsinu...
Svo skelltum við stelpurnar okkur í eina nótt upp í bústað. Var nú ekki pláss fyrir mikið meira en 3 í stofunni og það byrjaði nú ekki vel. Fundum loksins staðinn og þurftum að nota alla okkar eldunarhæfileika sem komu þvílíkt vel út. Ótrúlegt en satt! Höfðum það bara næs í pottinum með allt áfengið okkar og horfðum á stjörnuhrap.



Herdís og Orri eignuðust "loksins" strák þann 19. okt. Auður frekja braut allar reglur og mætti í heimsókn til þeirra í hreiðrið. Var kannski einum of áköf þar sem ég var á undan ömmunum og afanum. Hehe, úps. Hann er algjör krútíbolla og ekki frá því að hann sé svoldið líkur pabba sín. En hann er svo heppinn að eiga 3 eldri systkini sem dekra hann og eru svo stolt af honum.


Svo eru Raggi og Didda búin að skíra lita snúlla og hann heitir Böðvar Snær. Litla músin er annars á leiðinni til Boston fljótlega í aðgerð og er hægt að fylgjast með fjölskyldunni á blogginu sem þau voru að opna.


Hef annars ekki mikið meira að segja. Bið bara að heilsa ykkur í bili og hafið það sem allra best elskurnar mínar!

19 október 2007

Stjörnumerkin eftir að kynlífi lýkur!

Hrútur: "Ok , gerum það aftur!?"

Naut: "Ég er svangur / svöng--- pöntum pizzu"

Tvíburi: "Veistu hvar fjarstýringin er?"

Krabbi: "Hvenær giftum við okkur??"

Ljón: "Var ég ekki frábær??"

Meyja: "Ég verð að þvo rúmfötin?"

Vog: "Mér fannst þetta gott ef þér fannst það líka"

Sporðdreki: "Ég ætti kannski að tengjast þér?"

Bogmaður: "Ekki hringja í mig - ég hringi í þig"

Steingeit: "Áttu nafnspjald?"

Vatnsberi: "Gerum það núna í engum fötum!"

Fiskur: "Hvað sagðist þú annars heita?"

Þannig að mér er spurn hvað hún systir mín er að gera í Danaveldi?!?