10 mars 2008

Update

Jæja, þá er komið að smá update-i.
Bíllinn minn er bara með 2 drullusokka núna.
Við erum búin að mála baðið, fórum aukaumferð viku seinna þar sem að málningin lak. Komst að því í gær að málningin lak aftur, þannig að við þurfum að mála yet again! Þannig að núna á að kíkja hvort að málningin sé svona léleg fyrir baðherbergið.
Fyrir


Loftið orðið nokkuð ljótt

Þvílíkur munur þegar við vorum búin að pússa veggina

Það gekk svoldið mikið á hjá Víði

Eftir

Nema hvað að núna vantar okkur smá lit þarna inn

Skelltum okkur í IKEA um helgina og keyptum okkur hillur og viti menn, þær eru bara komnar upp.


Ég keypti mér annars nýja bók um daginn. Eftir snillinginn hana Noru Roberts. Komst að því þegar ég var samasem búin með bókina að þetta var bara sú fyrsta í nýju trilogy hjá henni. Ákvað að kíkja á Amazon hvort ég gæti ekki bara keypt hinar tvær í staðinn fyrir að bíða eftir því að þæra koma til landsins. En neinei, bók númer 2 kemur út í maí og þriðja bókin kemur ekki fyrr en í DESEMBER!!! Þetta eyðilagði daginn alveg hjá mér. Get ekki beðið í níu mánuði! Alveg á bömmer.
Er að fara til útlanda eftir 4 daga, jibbý get ekki beðið.
Ætti að vera nóg af update-i núna.
Annars er komið vor hjá mér

21 febrúar 2008

Ég syrgi kæran vin

Ótrúlegur þessi karl, hann tekur bara ekkert tillit til mín og minna tilfinninga. Hann rænir af mér bílnum, fór í of mikinn snjó og týndi drullusokknum mínum!! Og þetta gerðist einhvern tímann í seinustu viku og ég var bara núna að frétta af því. Ég fékk ekki einu sinni tækifæri til að kveðja greyið... Þannig að núna er greyið bíllinn minn (er að fatta núna að ég á ENNÞÁ eftir að gefa honum nafn) bara með þrjá drullusokka :( Það ættu nú allir að vita hvað drullusokkarnir mínir hafa gengið í gegnum margt með mér. Þeir hafa skafið flestar götur bæjarins, klappað mörgum hraðahindrunum, Sandvíkurheiðina og alla leiðina á milli Bakkafjarðar og Þórshafnar ásamt ýmsum öðrum leiðum. Þannig að hans verður sárt saknað.
Annars er planið hjá okkur Víði að vera ótrúlega dugleg um helgina. Ætlum að mála baðherbergið hjá okkur, þurfum að pússa það allt fyrst. En erum komin með juðara og málningu og ætlum að vera helvíti dugleg. Enda alveg kominn tími á smá upplyftingu þar. Þá fækkar gulu herbergjunum okkar um eitt, nokkuð gott afrek hjá okkur. Þannig að ef þið fréttið af því að við erum ekki að standa okkur, endilega rekið á eftir okkur.
Júbb, svo er ég loksins búin að ákveða mig með hillur inni í stofu. Ég ætla að kveðja Magga og þakka honum fyrir samfylgdina, búin að búa hjá okkur síðan við keyptum íbúðina. Við kíktum í IKEA og ætlum að kaupa okkur svoleiðis vegghillur. Erum bara aðeins að pæla í hvaða lit við eigum að fá okkur, og okkur líst best á þennan (þetta er ekki alveg svart, er með viðarrákum í). En þetta er allt að gerast. Einhver svaka framkvæmdagleði yfir mér þessa dagana.
Hva meir... júbb er að fara til útlanda eftir 3 vikur. En þessir fáu sem lesa þetta vita það líklega, og eru jafnvel að fara með mér.
Held ég segi þetta gott í bili, svo er bannað að setja út á hvað ég bloggi lítið, ef það commentar enginn hjá mér! En þetta ætti nú eitthvað að gleðja systur mína, untill next time...

31 janúar 2008

Yeah baby!

Hey, ég er víst að fara til Danmerkur. Og ekki bara einu sinni, heldur tvisvar! Þá meina ég tvær helgar í röð. Sjibbýýý, hlakka ekkert smá til. Við stelpurnar erum einmitt loksins að fara að panta ferðina um helgina.
Sá þetta á netinu og ákvað að deila því með ykkur..

Colonoscopies are no joke, but these comments during the exam were quite humorous..... A physician claimed that the following are actual comments made by his patients (predominately male) while he was performing their colonoscopies:
1. "Take it easy, Doc. You're boldly going where no man has gone before!
2. "Find Amelia Earhart yet?"
3. "Can you hear me NOW?"
4. "Are we there yet? Are we there yet? Are we there yet?"
5. "You know, in Arkansas, we're now legally married."
6. "Any sign of the trapped miners, Chief?"
7. "You put your left hand in, you take your left hand out..."
8. "Hey! Now I know how a Muppet feels!"
9. "If your hand doesn't fit, you must quit!
10. "Hey Doc, let me know if you find my dignity."
11. "You used to be an executive at Enron, didn't you?"
12 . "God, now I know why I am not gay."
And the best one of all..
13. "Could you write a note for my wife saying that my head is not up there?"

P.S. Er búin að þurfa að hnerra í 14 tíma núna, og það er ekki að takast!! Kunnið þið eitthvað ráð til að hnerra? Og ekki segja, horfðu í ljósið! það virkar ekki á mig.

07 janúar 2008

Smá svona...

Hæbb, nokkrir punktar

- gleðileg jól
- gleðilegt ár
- er ekki dauð
- er ekki deyjandi, ennþá allavega... fæ niðurstöðurnar í vikunni.
- er loksins byrjuð að fara til sjúkraþjálfara, hann hefur gaman af því að pína mig
- Anna smitaði mig af eyrnabólgu, mér finnst það kvikindislega gert

Bið að heilsa ykkur í bili

P.S Ekki segja við kærustuna ykkar: Þú lítur ekki ómyndarlega út

17 desember 2007

Djamm?? hvað er það nú...

Það er aldeilis kjafturinn á Gunnfríði. Þori ekki öðru en að blogga fyrst að ofurbloggarinn sjálfur finnur tilefni til að kvarta...
En ég er öll að hressast. Fór í vinnunna í dag og var svo velkomin. Hef aldrei áður fengið jafn góðar viðtökur í vinnunni held ég barasta, þær voru svo fegnar að fá mig aftur. Kláraði daginn einmitt á fundi um það hvert við eigum að fara á árshátið í vor. Held það sé komin niðurstaða í málið, hlakka ekkert smá til. Var svo líka nógu hress til að kíkja í 95 ára afmæli til Betu ömmu. Við Atli fórum í keppni um hvort okkar þekkti færri. Við vitum því miður ekki ennþá hver Maggi sem var að vinna með Villa tilla er. Nema það að hann er jú tengdapabbi Þórdísar. Það hjálpaði ekkert að útskýra að hann þekkti einhvern (Dódó eða Tótó eða whatever) sem hafði búið í Engjabergi. Þarf alveg að læra það að hætta að spurja þegar þær systur komast í ham að tala um gamla Hafnfirðinga. Svo sagði Sigrún mér að ég og Katla þyrftum bara að hittast og ræða okkar sjúkrasögu (semsagt frænka mín, þremenningar) þar sem hún og pabbi eru búin að komast að því að okkar sjúkrasaga er hrikalega lík, þannig að næst á dagskrá er að láta lækni skoða B12 vítamínframleiðsluna hjá mér. Katla þarf víst að fá sprautur við því og mamma sagði að ég þyrfti nú endilega að láta athuga það. Það er semsagt stórfjölskyldan sem á við gallblöðruvandamál að stríða.
Svo skelltum við mæðgurnar okkur í bæinn. Hún náði að klára jólagjafirnar sínar, dugnaðurinn alltaf í okkur. Þannig að núna er ég búin að fara of oft í bæinn og með flestum í fjölskyldunni held ég bara. Við Gagga búnar að skella okkur tvisvar sinnum saman í bæinn þar sem við keyptum seríu sem var drasl sem var afgreidd af vitlausasta afgreiðslumanni sem við höfum hitt!

Annars er aðalmálið að ég er víst að fara á eitthvað djamm á föstudaginn. Hafið þið heyrt eitthvað af því?? Annars veit ég hvernig barþjónninn okkar verður klæddur, ef einhver hefur áhuga á að klæðast í stíl. Þið vitið svona eins og í A knights tale. Nema það að þið eruð ekki prinsessur og það er bannað að fara með honum inn á klósett.
Svo ætla ég að komast í jólaskap um leið og þessi vindur hættir, já og rigningin. Haldiði að það takist ekki alveg á þessu ári? Er þetta ekki bara komið gott í bili? Og svo þarf líka að commenta fyrst maður heimtar blogg...

11 desember 2007

Sambandið farið í ruslið

Já gott fólk, það fór bara beint í ruslið.
Rúmlega 11 mánaða sambandi lokið. Eftir að hafa boðið nokkrum að taka við jukkunni minni ákvað ég bara að henda henni í ruslið. Fékk hana í byrjun ársins, þannig að ég held að ég hafi farið fram úr björtustu vonum.
Annars er ég búin að ákveða að ég skil lækna bara ekki neitt. Þegar ég loksins fór heim af spítalanum var bæði læknirinn minn og hjúkkan búin að segja mér að ég ætti að koma í tékk aftur eftir 2 vikur og svo ómskoðun eftir áramót. Röntgenlæknirinn vill eitthvað skoða lifrina í mér betur. Vona bara að það komi allt gott út úr því, en allavega. Fékk símtal frá röntgendeildinni í gær og þá átti ég víst tímahjá þeim í ómskoðun í gærmorgun, sem ég mætti ekki í, what!! Enginn búinn að segja mér frá því, þannig að þær ákváðu bara að fresta tímanum um einn dag, og minntu mig svo á hvenær segulómunin mín er. Uhhh, vissi ekki einu sinni að ég ætti að fara í svoleiðis skoðun. Ég í mínu sakleysi spyr bara hvort að ég geti farið í ómskoðun svona stuttu eftir aðgerð, þegar ég væri ennþá aum og svona, sérstaklega þegar mér var tilkynnt að ég ætti bara að fara í þetta eftir áramót. Það stóð víst á einhverri beiðni að ég hefði beðið um að klára þetta í desember út af afsláttarkortinu. Sem ég á ekki einu sinni. Þannig að ég bara spurði hvort að ég mætti ekki bara fara í báðar rannsóknirnar eftir áramót, og þær redduðu því bara fyrir mig. Þannig að ég verð væntanlega komin með afsláttarkort strax í fyrstu vikunni á næsta ári, damn, og ég sem gerði svo mikið grín að Víði í fyrra af því hann var svo snöggur að fá sitt kort.
En annars er ég öll að koma til. Ekki jafn aum og ég var fyrst. Er farin að geta staðið upp sjálf, sjibbý! En mjög gott að eiga svona góðar byrgðir af læknadópi :) Bara verst hvað mig klæjar svakalega undir plástrunum mínum, ohh langar svo að klóra mér almennilega.
Annars vil ég bara óska Katrínu Sól og Möllu til hamingju með daginn, og munið svo að vera stillt og góð börnin góð svo þið fáið nú ekki kartöflu í skóinn...