En ég er öll að hressast. Fór í vinnunna í dag og var svo velkomin. Hef aldrei áður fengið jafn góðar viðtökur í vinnunni held ég barasta, þær voru svo fegnar að fá mig aftur. Kláraði daginn einmitt á fundi um það hvert við eigum að fara á árshátið í vor. Held það sé komin niðurstaða í málið, hlakka ekkert smá til. Var svo líka nógu hress til að kíkja í 95 ára afmæli til Betu ömmu. Við Atli fórum í keppni um hvort okkar þekkti færri. Við vitum því miður ekki ennþá hver Maggi sem var að vinna með Villa tilla er. Nema það að hann er jú tengdapabbi Þórdísar. Það hjálpaði ekkert að útskýra að hann þekkti einhvern (Dódó eða Tótó eða whatever) sem hafði búið í Engjabergi. Þarf alveg að læra það að hætta að spurja þegar þær systur komast í ham að tala um gamla Hafnfirðinga. Svo sagði Sigrún mér að ég og Katla þyrftum bara að hittast og ræða okkar sjúkrasögu (semsagt frænka mín, þremenningar) þar sem hún og pabbi eru búin að komast að því að okkar sjúkrasaga er hrikalega lík, þannig að næst á dagskrá er að láta lækni skoða B12 vítamínframleiðsluna hjá mér. Katla þarf víst að fá sprautur við því og mamma sagði að ég þyrfti nú endilega að láta athuga það. Það er semsagt stórfjölskyldan sem á við gallblöðruvandamál að stríða.
Svo skelltum við mæðgurnar okkur í bæinn. Hún náði að klára jólagjafirnar sínar, dugnaðurinn alltaf í okkur. Þannig að núna er ég búin að fara of oft í bæinn og með flestum í fjölskyldunni held ég bara. Við Gagga búnar að skella okkur tvisvar sinnum saman í bæinn þar sem við keyptum seríu sem var drasl sem var afgreidd af vitlausasta afgreiðslumanni sem við höfum hitt!

Annars er aðalmálið að ég er víst að fara á eitthvað djamm á föstudaginn. Hafið þið heyrt eitthvað af því?? Annars veit ég hvernig barþjónninn okkar verður klæddur, ef einhver hefur áhuga á að klæðast í stíl. Þið vitið svona eins og í A knights tale. Nema það að þið eruð ekki prinsessur og það er bannað að fara með honum inn á klósett.
Svo ætla ég að komast í jólaskap um leið og þessi vindur hættir, já og rigningin. Haldiði að það takist ekki alveg á þessu ári? Er þetta ekki bara komið gott í bili? Og svo þarf líka að commenta fyrst maður heimtar blogg...





