25 september 2007

Dónde está el bar?

Viajo Barcelona! Held það sé rétt, en anywhose... ég er á leiðinni til Barcelona. SJIBBÝ



Förum í nóvember í 5 daga. Og Sirrý snillingur er að redda mér þvílíkt. Ætlar að senda mér lista yfir allt stuðið á staðnum. Ohhh mig hlakkar ekkert smá til.

Ætlaði bara svona aðeins að losa þetta af mér. Og já líka, ef að þið eruð að pæla hvar ég hef verið undanfarið, þá erum við samasem flutt til Birkis og Elfu. Elfa snillingur er svo dugleg að elda fyrir okkur. Mmmm, takk fyrir það allt. En heyri í ykkur, er að fara í mat til fólksins, heyrumst.
P.S. Ef þið eruð inni á facebook, endilega adda mér. Ef þið eruð ekki þar, þá endilega skellið ykkur þangað inn, mæli með því!

18 september 2007

Sætastur...

Næsti prins er mættur. Raggi og Didda eignuðust strák í gær, 17. sept.
Innilega til hamingju með sæta strákinn ykkar, ég á alveg eftir að missa mig í verslun og heimsóknum á þessa prinsa.


Og svo er Herdís búin að ákveða að eiga 30. sept, þannig að það er alveg brjálað að gera í þessu!

10 september 2007

Sætastur

Ég föst í smábörnunum...
En hann er bara svo svakalega sætur! Þetta er semsagt nýjasti fjölskyldumeðlimurinn í tengdafjölskyldunni. Innilega til hamingju Erna og Gulli.

09 september 2007

Heimilisleg húsmóðir

Djísús hvað þetta er ekki búin að vera orkuhelgi. Fór eldsnemma að sofa á föstudag og var þar af leiðandi vöknuð fyrir 9 á lau en það var allt í lagi þar sem ég var hvort sem er að fara að vinna. Og fór svo aftur snemma að sofa í gær líka.
En það er kominn lítill prins. Erna og Gulli eru búin að eignast lillann sinn. Veit reyndar ekkert meira, stærð, dagsetningu eða neitt. Þær upplýsingar koma bara um leið og ég veit meir. Annars sá ég Diddu áðan þannig að ég veit að hún er ekki komin af stað, bíð bara spennt eftir því.
En núna er ég vonandi flutt heim til mín aftur. Náði nebbla að klára verkefnið sem ég var með í vinnunni um helgina þannig að þetta ætti aðeins að lagast. En annars var staffadjamm á föstudaginn. Byrjaði kl 6, við stimpluðum okkur bara út og mættum beint upp á 4 hæð. Þar voru pizzur og drykkjarföng. Geggjað stuð á okkur þar... Svo var skemmtun á Nordica hótelinu sem byrjaði kl 9, fór nú ekki þangað vegna síþreytu og orkuleysis. Enda var ég líka með heilsu í það að vinna á laugardaginn annað en sumir hehe.
Svo kíkti Ásrún á mig í gær eftir að ég kláraði að vinna. Fórum og dunduðum okkur í Egg og RL tískuhús. Geggjað langt síðan við báðar höfðum gert eitthvað svoleiðis, bara dunda okkur og skoða. Góðir tímar!
En er farin að baka pizzu. Djöfulsins dugnaður alltaf í minni, alltaf að elda og bjóða í mat. (en er samt ennþá í verkfalli og þrjóskukeppni!!)

06 september 2007

Bleh

Hefur nú ekki mikið gerst hjá mér undanfarið. Er samasem flutt í vinnuna... alltaf að vinna langt fram eftir kvöldi þannig að ég hef ekki tíma eða orku í að gera neitt.
Þvílíkur dugnaður í mér, mín bauð bara í mat í kvöld. Sérréttur a la Auður. Tortilla... Birkir og Elfa komu með Kristófer Óla og Árni Leó. Frekar lítið af öllu meðlætinu eeeen heppnaðist bara nokkuð vel. Svo fann Óli tölvuleikina mína og hann skemmti sér stórvel, og ég bara uppgötvaði hvað ég á marga skemmtilega tölvuleiki. Anna þú skrifar það hjá þér og við rifjum þetta upp þegar þú kemur næst.
Annars er hann faðir minn algjör snillingur. Hann fór í einhverja ferð að Búrfelli með gömlu skólafélögunum úr MR. Datt ofaní einhverja gjótu um hádegi á laugardag. Það voru 2 læknar á staðnum og þeir hlúðu að honum og héldu að hann væri brotinn. Hann labbaði til baka, erfiða leið upp og niður en hann var svo dofinn að hann fann ekkert til. Svo var hann farinn að finna meira til á sunnudaginn þannig að hann ákvað að drífa sig nú á slysó. Hann þurfti nú bara að keyra úr Garðabænum! Komst að á endanum, týndist í klukkutíma og eftir röntgen kemur í ljós að önnur pípan í löppinni er brotin. En það truflaði hann nú lítið í 1 og hálfan dag! Ruglaður. En hann þarf að vera í gifsi í 7-10 daga og svo fær hann göngugifs í 5 vikur. Þannig að við systkinin erum búin að reyna að dekra hann aðeins.
Svo er allt að gerast í barnamálum. Erna og Gulli eru á fullu væntanlega as we speak! Víðir eignaðist frænda í dag, Þorvaldur og Alrún eignuðust strák í dag, gleymdi þeim víst í upptalningu. En þau eiga heima í Köldukinninni. Svo var Dóri félagi hans Víðis líka að eignast stelpu í dag. Og við misstum af allri óléttunni og allt! Ekki alveg að standa okkur, enda allt of margir óléttir til að keep up.
En ætlaði nú bara að létta aðeins á mér. Svo er Danmerkurferðin mín aðeins í uppnámi, en á eftir að tala betur við systur mína og sjá hvað verður.

Later píps!

27 ágúst 2007

Þvílíkur þrýstingur...

Ok ok, ég gefst upp! Eftir þennan þvílíka þrýsting og hótanir hef ég ákveðið að skella inn einni færslu. Greinilega enginn að lesa þessa síðu, þar sem bara ástkær systir mín hefur tjáð sig um endurkomu mína. En þá geri ég þetta bara fyrir mig...
Er að reyna að hugsa upp eitthvað sniðugt til að segja, en man ekki eftir neinu skemmtilegu. Er bara búin að búa í vinnunni seinustu vikur. Sé ekki fram á neinar breytingar þar á næstunni, en ef þið saknið mín mikið er alltaf hægt að plata mig í eitthvað. Bara biðja fallega :D
Ætla að kíkja til systur minnar í október, við Ásrún þurfum endilega að fara að bóka ferðina. Alltaf hægt að skemmta sér í baunalandi.


Uhhh, hvað meir? Jú kallinn kominn aftur í skólann. Það er bara fyndið. Ég er alveg búin að taka við af mömmu hans, "áttu að læra eitthvað fyrir morgundaginn?" "ertu búinn að læra heima?" hahaha, þvílíkur snillingur sem ég er. Sjáið þið þetta ekki fyrir ykkur?
En svo fer nú að styttast í allan þennan barnaskara sem er á leiðinni. 2 stykki eiga að koma núna um/eftir/fyrir mánaðarmót, og svo 3 stykki í viðbót fljótlega eftir það. Ef þú ert ólétt(ur) og ert ekki talin(n) upp hérna, endilega bara láta mig vita og ég skal bæta þér við. Næ varla að fylgjast með öllum þessum bumbum eða þessum óléttum...
En svona aðeins til að bæta á sjúkraskýrsluna mína. Fór loksins til háls- nef- og eyrnalæknis í dag. Sjibbý! Tók bara 2 ár að drulla sér til þess. Ég fer líklega í sneiðmynd af hausnum á mér á morgun (tækið var bilað í dag, krossum bara fingur) til þess að sjá hvernig þessar nefholur mínar eru. Svo á ég aftur tíma hjá honum á föstudag, til þess að lesa úr myndunum og ákveða framhaldið. Og eins og hann orðaði það pent, þá er ég víst "keis" og þarf líklega að fara í aðgerð. Já við erum að tala um það að það er ekki nóg að vera með steranefúða og sýklalyf, eða að fara í hreinsun, nei nei. Ég þarf líklega að fara í AÐGERÐ þar sem ég verð svæfð og eitthvað gert við kinnholurnar á mér. Mjög ánægð ef ég þarf ekki að vaka meðan þau pota eitthvað í nefið á mér.


Púff, held að þetta sé svona fínt til að byrja með, kannski styttra í næstu færslu hjá mér...

18 júlí 2007

400 metrar, halda hæðinni

Mín lifði af, er líka orðin svaka sólbrún og sæt. En ég ætlaði bara svona snöggvast aðeins að koma með ferðina. Fyrst ég fer aftur úr bænum á morgun, er skárra að vera nú aðeins búin að segja frá fyrri ferðinni. Hún var semsagt:
Fórum á þriðjudegi frá Bakkafirði með bilaða pústið okkar (já það kom gat strax á Vopnafjarðarheiðinni á leiðinni austur) til Ásbyrgis. Tjölduðum þar eina nótt, pökkuðum í rigningu og fórum aðeins vestar. Ætluðum að gista á Steindyrum en þau voru nýlögð af stað í ferðalag þannig að við sníktum gistingu á Akureyri í staðinn. Löbbuðum smá um bæinn daginn eftir því við þurftum að drepa heilan dag, og vegna veðurs nenntum við ekki að stoppa einhversstaðar á leiðinni á Búðardal og tjalda. Þannig að á endanum ákváðum við bara að fara alla leið á Búðardal, vorum grand á því og fengum bara inni á gistiheimili. Þá rann föstudagurinn upp og allt fólkið á leiðinni að hitta okkur. Þar var gist eina nótt á tjaldstæðinu, svo var keyrt beint í Norðurfjörð (fyrir utan systkinin sem þurftu aðeins að koma við í mjólkurbúðinni í Borgarnesi) og skelltum okkur á eins og eitt stykki ættarmót á tjaldstæðinu þar. Næsta dag (núna er kominn sunnudagurinn 8. júlí) skelltum við okkur í bátinn, Látravík næsta stopp, gist í Hornstrandavita, mánudagurinn fór í göngu, þriðjudaginn sigldum við yfir í Reykjarfjörð og gistum eina nótt þar í geðsjúklega góðu veðri og svo skilaði báturinn okkur aftur í Norðurfjörð á miðvikudag. Þá fórum við suður í Hólmavík og tjölduðum öll þar. Fimmtudaginn skildust leiðir, við Víðir vorum á leiðinni á Patró og brunuðum í rennifæri (skv lögreglunni á Hólmavík by the way) yfir Tröllatunguheiði og stækkuðum gatið aðeins á pústinu. Voru þið nokkuð búin að gleyma því? Þá búið að vera í 2 vikur, alltaf stuð að fá okkur í heimsókn :) Kíktum í heimsókn á Brynju (Maggi stakk víst af í veiði) sem var kófsveitt að mála og í miðjum flutningum og kíktum á litlustu frænku mína. Svo kíktum við í heimsókn til Ingólfs og þeirra á Látrabjargi og tjölduðum bara þar fyrir utan. Á föstudaginn skelltum við okkur svo á Birkimel á ættarmót og vorum fram á sunnudag og þá loksins komum við aftur heim til okkar eftir 18 daga útlegð. Fjúff, og ég er ennþá að þvo föt fyrir ferðina á morgun. En það verður bara stutt 5 daga ferð og bara stoppað á 2 stöðum þannig að það verður aðeins minna að segja frá því.
Kannski kem ég einmitt með aðeins betri lýsingar og jafnvel myndir frá báðum ferðunum í næstu viku.
En ég er allavega farin heim til mín. Leikur í kvöld, skilda að öskra sig hása! Heyri bara aftur í ykkur í næstu viku, þegar ég verð endanlega búin með sumarfríið mitt.