18 júlí 2007

400 metrar, halda hæðinni

Mín lifði af, er líka orðin svaka sólbrún og sæt. En ég ætlaði bara svona snöggvast aðeins að koma með ferðina. Fyrst ég fer aftur úr bænum á morgun, er skárra að vera nú aðeins búin að segja frá fyrri ferðinni. Hún var semsagt:
Fórum á þriðjudegi frá Bakkafirði með bilaða pústið okkar (já það kom gat strax á Vopnafjarðarheiðinni á leiðinni austur) til Ásbyrgis. Tjölduðum þar eina nótt, pökkuðum í rigningu og fórum aðeins vestar. Ætluðum að gista á Steindyrum en þau voru nýlögð af stað í ferðalag þannig að við sníktum gistingu á Akureyri í staðinn. Löbbuðum smá um bæinn daginn eftir því við þurftum að drepa heilan dag, og vegna veðurs nenntum við ekki að stoppa einhversstaðar á leiðinni á Búðardal og tjalda. Þannig að á endanum ákváðum við bara að fara alla leið á Búðardal, vorum grand á því og fengum bara inni á gistiheimili. Þá rann föstudagurinn upp og allt fólkið á leiðinni að hitta okkur. Þar var gist eina nótt á tjaldstæðinu, svo var keyrt beint í Norðurfjörð (fyrir utan systkinin sem þurftu aðeins að koma við í mjólkurbúðinni í Borgarnesi) og skelltum okkur á eins og eitt stykki ættarmót á tjaldstæðinu þar. Næsta dag (núna er kominn sunnudagurinn 8. júlí) skelltum við okkur í bátinn, Látravík næsta stopp, gist í Hornstrandavita, mánudagurinn fór í göngu, þriðjudaginn sigldum við yfir í Reykjarfjörð og gistum eina nótt þar í geðsjúklega góðu veðri og svo skilaði báturinn okkur aftur í Norðurfjörð á miðvikudag. Þá fórum við suður í Hólmavík og tjölduðum öll þar. Fimmtudaginn skildust leiðir, við Víðir vorum á leiðinni á Patró og brunuðum í rennifæri (skv lögreglunni á Hólmavík by the way) yfir Tröllatunguheiði og stækkuðum gatið aðeins á pústinu. Voru þið nokkuð búin að gleyma því? Þá búið að vera í 2 vikur, alltaf stuð að fá okkur í heimsókn :) Kíktum í heimsókn á Brynju (Maggi stakk víst af í veiði) sem var kófsveitt að mála og í miðjum flutningum og kíktum á litlustu frænku mína. Svo kíktum við í heimsókn til Ingólfs og þeirra á Látrabjargi og tjölduðum bara þar fyrir utan. Á föstudaginn skelltum við okkur svo á Birkimel á ættarmót og vorum fram á sunnudag og þá loksins komum við aftur heim til okkar eftir 18 daga útlegð. Fjúff, og ég er ennþá að þvo föt fyrir ferðina á morgun. En það verður bara stutt 5 daga ferð og bara stoppað á 2 stöðum þannig að það verður aðeins minna að segja frá því.
Kannski kem ég einmitt með aðeins betri lýsingar og jafnvel myndir frá báðum ferðunum í næstu viku.
En ég er allavega farin heim til mín. Leikur í kvöld, skilda að öskra sig hása! Heyri bara aftur í ykkur í næstu viku, þegar ég verð endanlega búin með sumarfríið mitt.

28 júní 2007

Ferðalagið hafið

Jæja, þá er maður komin í sumarfrí og við farin úr bænum, og komum einmitt ekkert heim næstu rúmlega 2 vikurnar.

Lögðum af stað í gærkvöldi og fórum til Akureyris þar sem við gistum heima hjá mömmu og pabba Elfu. Fórum á 2 bílum, við Víðir og svo Birki, Elfa og Bjarni í hinum. Kíktum aðeins í RL tískuhús, Hagkaup og ríkið áður en við lögðum svo af stað í rólegheitum. Stoppuðum fyrst í Dimmuborgum þar sem við tókum ca klukkutímagöngu og skelltum okkur svo í böðin í Mývatni. Geggjað gott að slappa svona aðeins af, reyndar rándýrt en það er annað mál. Alltaf hægt að selja líffæri úr Víði.

Reyndar var aðalskemmtunin að horfa á Bjarna skemmta sér á Vopnafjarðarheiðinni. (Fyrir þá sem ekki vita, þá er það frekar mjór malarvegur þar sem að eru alltaf hrúga af rollum að sleikja veginn og vera fyrir.) En hann ákvað bara að taka þær almennilega í gegn. Birkir hægði á sér og var að bíða eftir að helvítis rollurnar drulluðu sér af veginum þegar að Bjarni opnaði bara hurðina hjá sér og gelti á þær. Bara fyndið að horfa á það í næsta bíl fyrir aftan. Hjá næstu rolluhrúgu var nú bara rúllað niður rúðunni og reynt að grýta þær með flösku. Og hann gerði þetta í hvert skipti sem að rollur voru hans megin, sama hvort þær voru á veginum eða ekki, þangað til hann var búinn með skotfæri. Átti reyndar bara 2 góð köst, þannig að ég tilkynnti honum bara að það væri á hans ábyrgð að kenna börnunum sínum að kasta betur.

En við erum allavega komin í dekur til tengdó, von á fleira fólki á morgun og það verður örugglega geggjað stuð hérna um helgina. Óvissuferð, grillveisla og margt fleira á dagskránni hjá þeim systrum þannig að þetta verður gaman. Læt nú kannski heyra í mér aftur áður en við leggjum af stað í óvissuna. Veit ekki alveg hvar ég verð í næstu viku, nema það að ég á sjóðandi heitt deit á Búðardal á föstudaginn í næstu viku.
En ég bið bara að heilsa ykkur í bili. Anna mín, passaðu bara að drepa ekki Bubba byggir og hafðu það gott í baði :)

14 júní 2007

...og blása

Oooohh, ég hef það svo gott...
snýtipappír
nefsprey
hálstöflur
meiri snýtipappír
hitastillandi
hausverkjatöflur
ennþá meiri snýtipappír
nora roberts
vídjó
tónlist
og ennþá meiri snýtipappír
tölvan mín

Vill einhver skipta við mig?? Mér finnst að það eigi að vera bannað með lögum að vera veikur á sumrin. En ætla nú ekki að gera of mikið mál úr þessu á meðan ég verð góð þegar ég fer í frí. Úúúú road trip eftir 2 vikur...
En ætla bara að halda áfram að vera veik og reyna að hunsa þessa bévítans vespu sem ákvað að kíkja í heimsókn til mín. Vona bara að hún haldi sig í eldhúsinu.

03 júní 2007

... og þær ilma, af dulúð og sól

Búið að vera brjálað að gera hjá mér undanfarið, en ætla nú ekkert að vera að skrifa um það núna. En ef þið hafið ekki tekið eftir því, þá er sumarið komið og það þýðir bara eitt. Ferðalög!!! Ohhh, sjibbý. Útilegur og stuð í allt sumar. En það er komið smá plan fyrir sumarið... Ef ég er að gleyma einhverju, eða þið hafið fleiri hugmyndi endilega koma með þær. Langar svo að endurupplifa sumarið fyrir 4 árum þegar ég var ekki eina einustu fríhelgi í bænum. Ég ætla bara að vera út um allt!

28 júní - 2 júlí: fjölskyldumót á Bakkafirði
5/6 - 11 júlí: fjölskylduganga á Hornströndum
13 - 15 júlí: ættarmót einhversstaðar á vestfjörðum
19 - 23 júlí: happy days á Þórshöfn (fyrstur kemur, fyrstur fær gistingu)

Þar fyrir utan er líka planað að fara í útilegu í Þakgil, veiðiferð/útilega við Hítarvatn, langar geggjað í helgarferð í Þórsmörk, svo er líka verslunarmannahelgin, og okkar árlega ferð á fiskidaginn nema annað betra bjóðist hehe. Þannig að núna er málið bara eitt, hverjir ætla með, hvert og hvenær erum við laus í það? Endilega leyfið mér að fylgjast með...

30 maí 2007

Hvíldu vel...

Svefninn laðar, líður hjá mér.
Lífið sem ég ann ég lifað hef.
Fólk og furðuverur
hugann baðar andann hvílir.
Lokbrám mínum læsi uns
vakna endurnærður

Það er sumt sem maður saknar
vöku megin við.
Leggst út af á mér slokknar.
Svíf um önnur svið
í svefnrofunum finn ég
sofa lengur vil.
Þí ég veit að ef ég vakna upp
finn ég aftur til.

Svefninn langi laðar til sín
lokakafla ævi skeiðs.
Hinsta andardráttinn.
Andinn yfirgefur húsið
hefur sig til himna
við hliðið bíður drottinn.

23 maí 2007

Walk on, walk alone!

Smá fótboltablogg... Var að horfa á úrslitaleikinn, góður leikur og mjöög góð úrslit. Ef þið vitið það ekki þá byrjaði ég einmitt að horfa á ítalska boltann þar sem mitt lið var að sjálfsögðu AC Milan. Þannig að gleði mín er mikil yfir því að hitt liðið mitt hafi unnið liði hans Jóa bró. Enda ekki furða með þennan skipper! Maðurinn verður 39 ára í næsta mánuði og er búin að spila í Seria A í 22 ár. Og fyrir ykkur stelpurnar sem fílið ekki fótbolta, þá er hann líka helvíti flottur ítalskur foli hehe.


En annars ætlaði ég að tilkynna ykkur að við erum á leiðinni í bústaðinn hans Víðis um þarnæstu helgi (fyrsta helginn í júní). Hann er staðsettur í Látravík, sem er víkin fyrir neðan Látrabjarg. Þið vitið, stóra fuglabjargið rétt hjá Patró sem allir túristarnir fara að skoða. Glæsileg hvít sandströnd og ótrúlega flottur staður! Ef þig langar með endilega láttu mig vita. Tekur ca 5 tíma að keyra, en þið ættuð nú öll að vera von að keyra ca 8 tíma á Bakkócity þannig að þetta er bara biti úr köku. Nema aumingjarnir sem taka bara flug.


Svo var ég annars að eignast litla frænku í dag. Svenni og Jónína voru að eignast fyrsta barnið sitt. Hún er algjör dúlla, með fullt fullt af ljósu hári. Og svo er hún alveg eins og pabbi sinn, ég sem sé aldrei svip á börnum sá það strax og meira að segja hann Víðir sá líka Svenna út úr þessu! Þannig að núna eru Maggi og Brynja orðin amma og afi, Maggi frændi einmitt 38 ára, Herdís og Raggi orðin afasystkini og frú Jóhanna orðin langamma 56 ára. Var einmitt að reikna það út að hún á þá núna 11 afkomendur, og 2 í viðbót á leiðinni. Meðan mamma sem er nokkrum árum eldri á okkur 3 systkinin. Við erum greinilega ekki alveg að standa okkur, enda fór mamma bara smá krókaleið og eignaðist stjúpbörn/barnabörn. Þannig að núna er komin formleg pressa á Önnu og Jóa, þið vitið að ég hef 4 ár í viðbót, þannig að pressan er ekki alveg komin á mig ennþá hehe.

19 maí 2007

Sumarið er komið! SJIBBÝ

Ég veit ekki hvort ég sé svona skrítin eða hvað, þar sem að allir aðrir virðast ósammála mér. En ég er bara hélvíti ánægð með lagið sem vann Eurovision. Hélt með Finnlandi, ótrúlega hrifin eitthvað af því lagi, en þegar hún byrjaði að syngja frá Serbíu fékk ég gæsahúð og það er minn skali á góða tónlist. Og mín ótrúlega góð og kaus þau bæði! En þetta eru nú old news.

Svo fengum við Víðir skemmtilegt bréf frá skattinum um daginn. Ég og skattmann vorum sko innilega ekki vinir þá. Okkur var tilkynnt að við gætum ekki talið fram saman þar sem að við þyrftum að lágmarki að hafa verið í sambúð í ár, og vááá það munaði alveg 10 dögum hjá okkur! En ég náði nú að redda því á föstudaginn, þannig að þetta á að vera komið í lag núna, þurfti ekki að gera skýrslurnar okkur aftur, fjúkk.

Annars hef ég hér með ákveðið að sumarið er komið. Við Víðir erum orðin sólbrún og sæt þannig að jamm, sumarið er komið. Vorum að koma heim úr bústaðnum og við erum búin að vera alveg ótrúlega dugleg, þó svo ég segi sjálf frá. Það var sem sagt verið að skipta um það á bústaðnum, verið að setja upp flottar grænar plötur. Við mættum fyrst á staðinn, eða um 2 á föstudaginn þar sem að ég dekraði við mig og gaf mér frí í vinnunni þann daginn, og Víðir var búinn á hádegi. Og getiði hvað, ÉG fór upp á þak og var þar alveg í 2 tíma! Við Víðir ótrúlega dugleg og kláruðum mæninn og smá meira áður en hitt fólkið mætti. Gagga ekkert smá ánægð að sjá hvað við vorum dugleg. En annars kláruðum við að rífa af í gær, og vá hvað það var gott að komast í pottinn eftir það. Svo var pappanum hent á strax í morgun (ræs kl 10 mín yfir 8) og plöturnar kláraðar líka í dag. Við frænkurnar fórum líka aðeins í það að rífa niður girðinguna sem er löngu morknuð og týnd í trjánum. Þannig að þetta er geggjaður dugnaður í okkur öllum saman! Takk fyrir, takk fyrir. Þannig að við skötuhjúin ætlum bara að hafa það mjög rólegt og afslappað í kvöld.

Bið annars bara að heilsa ykkur í bili, vona samt að það verði styttra á milli næstu pósta.