24 apríl 2007

Blah blah

Er svo innilega ekki að nenna að vinna, en þarf nú samt að halda áfram.

Ætlaði annars bara að óska Árna til hamingju með afmælið í gær og svo koma með eina létta í tilefni dagins.

Ég hef loksins fundið réttu aðferðina við að vigta mig:

Ég skil ekki hvernig ég gat gert þetta vitlaust öll þessi ár...

19 apríl 2007

Sumarið er tíminn

Já gott fólk, hið sjóðandi heita íslenska sumar er komið. Funduð þið ekki fyrir því í dag? Örugglega eina landið í heiminu sem vill að fyrsti sumardagurinn byrji með frosti. En það tókst einmitt núna þannig að það er von á góðu sumri. Ekkert nema gott mál, kominn tími á eitthvað annað en rigningu þennan stutta dag sem það er ekki frost hjá okkur.

Svo vil ég líka óska gamla fólkinu til hamingju með daginn. En þetta er stór dagur í lífi mömmu og Sæma, því turtildúfurnar eiga 2 ára brúðkaupsafmæli í dag. Þurfti reyndar að minna Sæma kallinn á það, en hún fær kannski rósir í kvöld eða eitthvað.

Annars er ég ekki ennþá að komast yfir það hvað allir eru óléttir. Ég er einmitt ekkert að grínast með það. Fórum og skoðuðum litlu prinsessuna í dag, algjör snúlla. Og er búin að frétta af fleiri óléttum, þannig að þetta liggur við faraldshættu. Það má víst ekki anda á sumar, þær verða bara óléttar hehe. Kallinn sagði þetta sjálfur þannig að ég er ekkert að ýkja hlutina.

Svo var ég annars að fá slæmar fréttir í gær. Einn sem er að vinna með mér á ólétta konu (surprise, surprise) og hún er ólétt af tvíburum. Hann var einmitt að segja mér í gær að tvíburar koma frá móðurinn. DAMN! Ekki nógu góðar fréttir sko, ef ég á að segja eins og er. En það er víst hægt að reikna út líkurnar á því að eignast tvíbura þannig að... Ef þið komist einhversstaðar yfir þetta útreiknipróf, í guðana bænum látið mig vita. Þetta eru það slæmar fréttir að maður þarf nú að gefa sér nokkur ár til að undirbúa sig, ekki nokkrar vikur eins og foreldrar mínir fengu.

En mín bara aðeins að pústa. Hafið það nú bara gott elskurnar mínar. Sé ég ykkur ekki öll í eldheita parýinu á Pravda í kvöld? Fékk allavega formlegt boð...

11 apríl 2007

Ert þú óléttúr?

Það er bara allt að gerast. En fjölgun mannkynsins er hafin. One down, few to come! Bjarni og Þórdís eignuðust litla prinsessu í gær, veit ekki meir þar sem engar nánari upplýsingar voru gefnar út. En henni var fagnað um allan heim í gær, aðallega af rauðklæddu fólki að horfa á fótbolta, þar sem hún fæddist á svo góðum tíma eða kl hálf níu í gærkvöldi.

En þá eru bara eftir 5 óléttur í nánustu fjölskyldu. (Sem ég veit um, by the way!) Og nei, við erum ekki að koma með eitt eða að drífa okkur í þessu eða hvernig sem þið viljið orða þetta. Búin að fá þá spurningu of oft! Og enginn hringir í Víði eða boggar hann á þessu! Arg, drasl er þetta, það er ekki á planinu næstu árin. Ég læt ykkur vita þegar það breytist.

Annars er bara allt það fínasta að frétta, ég náði að henda 3 myndum í viðbót upp, næst eru það bara ljósin. Þau þurftu jú alveg ár til að aðlagast breyttu heimili áður en þau eru bara fest þar. Það segir rafvirkinn allavega. Svo er Annan mín aftur farin heim til sín, vel úthvíld og endurnærð hehe! Gott að sofa í flugvélinni og lestinni...

Svo er bústaður um helgina, við orðin svo fullorðin að það gætu jafnvel laumast með 1 stk barn eða jafnvel fleiri. En það er verið að halda upp á afmælið hjá kallinum, ellismellurinn verður 26 ára. Og hugsiði ykkur bara, hann er ekki ennþá kominn með grá hár! En það verður ljúft að slappa af í pottinum, grilla og hafa það bara gott.

En bið annars bara að heilsa ykkur í bili. Ætla að fara að gera eitthvað af viti.

27 mars 2007

Gerið ykkur klár...

Það er búið að slátra alikálfinum, mála íbúðina, kaupa ný húsgögn og skipta kallinum út því endurkoma týndu dótturinnar er loksins framundan!
Nei nei, kannski ekki alveg svona slæmt, kallinn losnar ekkert við mig :D En það er búið að laga gardínurnar, kaupa myndir sem MUNU verða komnar upp áður en hún kemur og að sjálfsögðu þrifið hátt og lágt. Framundan er reyndar alveg stíft plan, það er:
Föstudagur: spilakvöld heima hjá mér, við stelpurnar tökum bara rólega gúrku á þetta (í þeirri merkingu sem þið vilji)
Laugardagur: spilakvöld heima hjá mér, frændsysktinin í stuði (engin rólegheit)
Sunnudagur: matarboð, tengdó, og þau í Hnotuberginu (djísús kræst) en Annan mín ætlar einmitt að koma og hjálpa mér að þrífa og elda
Miðvikudagur?: frænkukvöld heima hjá mér, við og kallarnir okkar


Svo ætlaði ég líka að kíkja upp í bústað eina nótt. Það verður alveg nóg að gera hjá minni meðan systa er á "klakkanum" enda langt síðan maður sá hana.

Ef þið viljið hitta mig, leggið bara inn pöntun hérna í commentonum.

En ég og plönturnar mínar biðja bara að heilsa, endilega látið heyra í ykkur. Ykkur er líka velkomið að detta í heimsókn til mín, á nóg af bjór og meðlæti. Maður dekrar við danann alveg...

23 mars 2007

Góða helgi


Nenni ekki að blogga núna, segi bara góða helgi...

15 mars 2007

Rétt lifi


Bara svona aðeins að láta vita að ég er ennþá lifandi... en reyndar bara rétt svo
Er að vinna fram eftir hverju kvöldi, toppaði reyndar daginn í dag þar sem að ég komst ekki einu sinni í hádegismat ZzZzZzZz djísús hvað ég er líka orðin þreytt.
En ætla bara að horfa á House vin minn og hvíla löppurnar mínar. Ég og blómin mín biðjum bara að heilsa.

06 mars 2007

Rólegheitin

Hef nákvæmlega ekkert að segja, en ákvað nú aðeins að láta vita af mér. Er ennþá að jafna mig á þessari andskotans flensu, alveg komin með nóg.
Var búin að ákveða að vera heima alla helgina með táslurnar upp í loftið og reyna að jafna mig. Endaði nú með því að ég fór út báða dagana, bara fyrir fótbolta. Við Atli fórum semsagt á fyrsta fótboltaleikinn okkar á þessu ári. Sátum í troðfullri stúku og í hrikalegri stemmningu í Egilshöllinni. Öll 30 sætin upptekin, og enginn tilgangur að klappa eða hvetja sitt lið áfram. Verðum bara að gera þetta sjálf.
Svo er alveg nóg að gera í vinnunni, veikindi allsstaðar þannig að ég er bara ein á morgnanna. Smá pressure en ég er soddan snillingur að ég höndla þetta alveg.
Svo kíkti Ásrún tölvugúru og ég henti inn einni ritgerð fyrir hana. Þau eru víst svo klár á tölvur. Hún bað Frank um að skella henni inn, en hann kann ekkert á þetta world forrit þannig að hún ákvað bara að hringja í yours truly! En hún náði allavega að skila ritgerðinni í dag, þannig að þetta fór allt saman vel.

Er að spá í að halda bara áfram að lesa og hafa það rólegt meðan strákarnir leika sér í tölvunni. Heyri bara í ykkur seinna... plönturnar mínar biðja líka að heilsa. Out!