27 mars 2007

Gerið ykkur klár...

Það er búið að slátra alikálfinum, mála íbúðina, kaupa ný húsgögn og skipta kallinum út því endurkoma týndu dótturinnar er loksins framundan!
Nei nei, kannski ekki alveg svona slæmt, kallinn losnar ekkert við mig :D En það er búið að laga gardínurnar, kaupa myndir sem MUNU verða komnar upp áður en hún kemur og að sjálfsögðu þrifið hátt og lágt. Framundan er reyndar alveg stíft plan, það er:
Föstudagur: spilakvöld heima hjá mér, við stelpurnar tökum bara rólega gúrku á þetta (í þeirri merkingu sem þið vilji)
Laugardagur: spilakvöld heima hjá mér, frændsysktinin í stuði (engin rólegheit)
Sunnudagur: matarboð, tengdó, og þau í Hnotuberginu (djísús kræst) en Annan mín ætlar einmitt að koma og hjálpa mér að þrífa og elda
Miðvikudagur?: frænkukvöld heima hjá mér, við og kallarnir okkar


Svo ætlaði ég líka að kíkja upp í bústað eina nótt. Það verður alveg nóg að gera hjá minni meðan systa er á "klakkanum" enda langt síðan maður sá hana.

Ef þið viljið hitta mig, leggið bara inn pöntun hérna í commentonum.

En ég og plönturnar mínar biðja bara að heilsa, endilega látið heyra í ykkur. Ykkur er líka velkomið að detta í heimsókn til mín, á nóg af bjór og meðlæti. Maður dekrar við danann alveg...

23 mars 2007

Góða helgi


Nenni ekki að blogga núna, segi bara góða helgi...

15 mars 2007

Rétt lifi


Bara svona aðeins að láta vita að ég er ennþá lifandi... en reyndar bara rétt svo
Er að vinna fram eftir hverju kvöldi, toppaði reyndar daginn í dag þar sem að ég komst ekki einu sinni í hádegismat ZzZzZzZz djísús hvað ég er líka orðin þreytt.
En ætla bara að horfa á House vin minn og hvíla löppurnar mínar. Ég og blómin mín biðjum bara að heilsa.

06 mars 2007

Rólegheitin

Hef nákvæmlega ekkert að segja, en ákvað nú aðeins að láta vita af mér. Er ennþá að jafna mig á þessari andskotans flensu, alveg komin með nóg.
Var búin að ákveða að vera heima alla helgina með táslurnar upp í loftið og reyna að jafna mig. Endaði nú með því að ég fór út báða dagana, bara fyrir fótbolta. Við Atli fórum semsagt á fyrsta fótboltaleikinn okkar á þessu ári. Sátum í troðfullri stúku og í hrikalegri stemmningu í Egilshöllinni. Öll 30 sætin upptekin, og enginn tilgangur að klappa eða hvetja sitt lið áfram. Verðum bara að gera þetta sjálf.
Svo er alveg nóg að gera í vinnunni, veikindi allsstaðar þannig að ég er bara ein á morgnanna. Smá pressure en ég er soddan snillingur að ég höndla þetta alveg.
Svo kíkti Ásrún tölvugúru og ég henti inn einni ritgerð fyrir hana. Þau eru víst svo klár á tölvur. Hún bað Frank um að skella henni inn, en hann kann ekkert á þetta world forrit þannig að hún ákvað bara að hringja í yours truly! En hún náði allavega að skila ritgerðinni í dag, þannig að þetta fór allt saman vel.

Er að spá í að halda bara áfram að lesa og hafa það rólegt meðan strákarnir leika sér í tölvunni. Heyri bara í ykkur seinna... plönturnar mínar biðja líka að heilsa. Out!

27 febrúar 2007

Helvítis flensan

Þoli ekki að vera veik!! Búin að vera veik síðan á föstudag og þetta kemur alveg á versta tíma. Er enn einu sinni komin með lyfjabúr heim til mín, við Víðir hljótum nú að halda allavega einu ef ekki tveimur lyfjafyrirtækjum fljótandi. Ég held samt að það sé önnur ástæða af hverju hálsinn á mér er svona slæmur. Bifhárin mín eru nefnilega að lifna við. Það gerist víst þegar maður hættir að reykja, og það eru jú að verða komin 6 ár síðan þau drápust aftur. (Ég er samt bara 18 sko) Var einmitt að rifja upp Akureyrarferðina um daginn, sem ég jú byrjaði að reykja aftur fyrir. Helvíti var það skemmtileg helgi. Ásdís sá bæði rauðmaga og hval... soddan vitleysingur hehe.

Hafið þið ekki alveg séð hval í Eyjafirðinum? Bara á pollinum? Syndandi í rólegheitum með rauðmaganum.
Er að spá í að segja þetta bara gott í bili. Það er jú nóg að Anna viti hvernig heilsan hjá mér er, þar sem þú ert jú sú eina sem lest þetta bull mitt. En ég og plönturnar mínar biðja bara að heilsa í bili. Ekki verða lasin!

24 febrúar 2007

Ný síða...


Jæja, var komin með leið á hinni síðunni minni. Ætla að sjá hvernig þessi kemur inn. Langar nebbla að vera flinkari við að henda inn myndum og svona, veit að það eru nú einhverjir sem gætu hjálpað mér með það.
Annars er nú voða lítið að heyra frá mér. Mjög langt síðan ég lét heyra í mér en nenni nú ekki að tala um það allt.
Það var óvissuferð í vinnunni um seinust helgi. Skipt í lið og haft þrautir og leiki og svona. Það var alveg geggjað stuð. Pool- og pílukeppni á Classic, svo var hoppað í rútu og við enduðum upp á Skaga. Þar fórum við í íþróttahúsið og lékum okkur smá og borðuðum. Endaði að sjálfsögðu á því að mitt lið vann, þannig að ég er óvissuferðarmeistari. Takk takk! Ég kynntist vinum hans Jóa aðeins betur, þeir eru 2 sem að vinna með mér. Það endaði nú á því að Bogi var farinn að mata mig á jarðarberjum, og þá náttla mataði ég hann á móti. Þetta var svona bonding ferð. Ég ákvað að fara bara heim þegar rútan kom í bæinn rétt eftir miðnætti. Stuttu seinna fékk ég sms frá Jóa. Þá höfðu strákarnir víst tilkynnt honum að Runólfsdóttir hefði drepist og verið skilin eftir. Ég leiðrétti þann misskilning bara. Svo er bara búið að vera rugl að gera í vinnunni þessa viku. Er búin snemma ef ég kemst út fyrir 7, var lengst til 9. Þannig að mín er drulluþreytt eftir það.
Hætti líka að reykja fyrir viku síðan. Búin að standa mig bara nokkuð vel í því. En ekkert samt vera að spurja Birki út í það. Bjarni hefur bara slæm áhrif á mig, það er allt og sumt.
En ætla að slútta þessu í bili. Ætla aðeins að prufa hvað þessi síða getur sniðugt. Heyri bara í ykkur. Plönturnar mínar biðja að heilsa.